Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar 24. september 2026 16:15 Það fer ekki fram hjá þeim foreldrum sem hafa börn í íþróttum að sjálfboðavinna skiptir gríðarlegu máli fyrir starfsemi íþróttafélaga. Sjálfboðavinna foreldra og aðstandenda iðkanda er lífæð fyrir íþróttastarfið. Við borgum æfingagjöld, sem hafa hækkað töluvert síðustu misseri og mörg okkar sinnum sjálfboðavinnu á þeim mælikvarða að ótrúlegt sé að eina greiðslan sé að íþróttastarfið gangi smurt fyrir sig. Aðstandendur og iðkendur sem nú æfa í Egilshöll í eigu Heima fasteignafélags, þurfa nú að greiða fyrir bílastæði. Stjórnir deilda sem leigja aðstöðu af Heimum hafa reynt eftir fremsta megni að koma áhyggjum sínum um þetta fyrirkomulag á framfæri. Bílastæði sem lengst eru frá húsinu eru gjaldfrjáls fyrstu fjórar klukkustundirnar. Nær húsinu eru gjaldfrjálsar fyrstu 15 mínúturnar. Eftir það kostar hver klukkustund um 450 kr Það gefur augaleið að þetta kemur sér afar illa, sérstaklega fyrir mótahald og annað sem oft fer fram í húsinu. Að auki eru þeir sem sinna hvað mesta sjálfboðavinnu nú þegar, oft að koma með vörur, mat og annað sem þarf fyrir starfsemina, bera þarf það inn í hús og koma fyrir – í sjálfboðavinnu. Fyrir það þarf nú að greiða. Hér ætla ég að taka dæmi fyrir Íshokkídeildina, hana þekki ég best. Að ná út úr bíl vörum fyrir mót sem dæmi og ferja uppá þriðju hæð, ein – í sjálfboðavinnu er ekki vinnandi vegur að ná undir korteri. Þegar mót eru hjá okkur er viðvera þeirra sem við það vinna aldrei undir 4 tímum, má hér nefna að iðkandi sem keppir einn leik, hann er að jafnaði um 5 klukkustundir í Egilshöll að sinna þeim eina leik. Yngri flokkarnir eru hálfan daginn á sínum mótum. Við hvern leik þarf 7 til 8 sjálfboðaliða, það hefur oft reynst erfitt og hvað þá ef fólk þarf nú að borga með sér. Gefur auga leið að þessi ákvörðun kemur sér ákaflega illa fyrir starfsemi sem nú þegar tekur virkilega á sjálfboðaliða. Innan okkar deildar eru ótal ferðir norður á land til að keppa, rúta kemur iðulega að morgni laugardags að sækja okkur haldið er norður, leikur eða leikir spilaðir og svo oft komið heim að nóttu um kl 3. Með yngri flokkum eru fylgdarmenn, þeir greiða þá fyrir bílastæði að auki núna. Gjörsamlega galið að ekki sé hægt að gera þetta öðruvísi og hugsa aðeins út fyrir gróðahugsun og huga að brothættri starfsemi sem á að auka hreyfingu, heilbrigði og lýðheilsu framtíðarinnar. Höfundur er formaður Foreldrafélags Bjarnarins, íshokkídeildar Fjölnis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íþróttir barna Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar