Play í hlutafjáraukningu og á aðalmarkað Forsvarsmenn Play hafa hafið undirbúning á hlutafjáraukningu fyrir félagið. Ráðgert er að sækja allt að þrjá til fjóra milljarða króna í nýtt hlutafé. Þá stefnir félagið á að flytja sig yfir á aðalmarkað Kauphallarinnar á fyrri helmingi ársins. Gengi félagsins í Kauphöllinni var sextán prósentum lægra en í gær þegar markaðir opnuðu í dag. Viðskipti innlent 9. febrúar 2024 10:11
Slökkt á loftræstingu og snjóbræðslukerfum á Keflavíkurflugvelli Búið er að slökkva á loftræstingu á Keflavíkurflugvelli til að halda hita á byggingunni. Allt flugvallarsvæðið verður brátt án alls heits vatns. Innlent 8. febrúar 2024 16:20
Gjóskan út á haf og ætti því ekki að trufla flug Lítið gjóskufall gæti fylgt þeirri atburðarás sem nú er í gangi í eldgosinu á Reykjanesskaga, þar sem nú má sjá merki um samspil kviku og grunnvatns. Dökkan reyk leggur upp af hrauninu. Gjóskunni blæs út á haf og ætti ekki að hafa áhrif á flug. Innlent 8. febrúar 2024 14:32
Swift ferðast nú bara með einni einkaþotu Söngkonan Taylor Swift þarf nú að sætta sig við að hafa bara eina einkaþotu til afnota þegar hún ferðast um heiminn. Fjórtánfaldi Grammy-verðlaunahafinn seldi aðra þotu sína um síðustu mánaðamót. Lífið 8. febrúar 2024 14:29
Heitavatnslaust á Keflavíkurflugvelli Heitavatnslaust er á Keflavíkurflugvelli vegna hrauns sem flætt hefur yfir heitavatnsæð við Svartsengi. Innlent 8. febrúar 2024 13:25
Staðsetning gossins ekki jafn ógnvekjandi og síðast Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs í Grindavík, frétti af eldgosinu í morgun frá syni sínum sem vinnur á Keflavíkurflugvelli. Innlent 8. febrúar 2024 07:51
Bogi Nils valinn markaðsmanneskja ársins Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var í gærkvöldi valinn markaðsmanneskja ársins 2023 hjá ÍMARK. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 10:34
Farþegum fjölgaði í janúar hjá Play og Icelandair Farþegum í janúarmánuði fjölgaði hjá íslensku flugfélögunum Play og Icelandair. Farþegum fjölgaði um 61 prósent hjá Play miðað við sama tíma í fyrra en sjö prósent hjá Icelandair. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 10:31
Fékk samviskubit eftir mannskæðasta flugslys íslenskrar flugsögu „Svo byrjum við að heyra högg. Púmm, púmm, púmm. Ég fer að hugsa: Það er eitthvað að, segir Oddný Björgólfsdóttir, fyrrum Loftleiðaflugfreyja. Oddný var ein af þeim 79 sem komust lífs af þegar Leifur Eiríksson, DC-8 þota Flugleiða, fórst í aðflugi við Katunayake-flugvöll í Kólombó á Sri Lanka. Oddný var í þrjár vikur á sjúkrahúsi áður en hún flaug heim til Íslands þar sem við tók löng endurhæfing. Lífið 7. febrúar 2024 07:00
Sótti um vernd vopnaður kennsluefni í að koma illa fram við konur Erlendur karlmaður sem sótti um alþjóðlega vernd hér á landi í lok janúar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á meðan mál hans er til umfjöllunar. Í fórum hans fannst efni um hvernig eigi að beita konur misrétti. Innlent 6. febrúar 2024 17:37
Farangurskerra fauk á flugvél Icelandair í hríðinni Flugvél Icelandair var á leið út á flugbraut þegar farangurskerra fauk utan í hreyfil hennar. Farþegar hafa verið í flugvélinni í rúma fimm tíma og komast ekki út vegna brjálaðs roks. Þá hefur öllum flugferðum Icelandair frá vellinum verið aflýst í kvöld vegna veðurs. Innlent 2. febrúar 2024 21:05
Suðurnesjabær býður Höllu velkomna til Sandgerðis Halla María Svansdóttir, veitingakona í Grindavík sem rekið hefur veitingastaðinn hjá Höllu í heimabæ sínum hefur samið við Suðurnesjabæ um aðstöðu í Vörðunni í Sandgerði. Viðskipti innlent 2. febrúar 2024 16:29
Nokkrir látnir eftir að flugvél brotlenti í byggð fyrir eldri borgara Nokkrir eru látnir eftir að lítil flugvél brotlenti í byggð fyrir eldri borgara í Clearwater í Flórída í nótt. Mikill eldsvoði braust út í kjölfar flugslyssins og fjöldi látinna er óljós. Erlent 2. febrúar 2024 12:22
„Það er mikilvægur áfangi að skila hagnaði“ Icelandair hagnaðist um 1,5 milljarð í fyrra, eftir skatta, sem er töluverð breyting frá árinu áður þegar félagið tapaði 800 milljónum. Eldgos og jarðhræringar höfðu mikil áhrif á rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi. Alls ferðuðust þó 4,3 milljónir farþega með þeim í fyrra sem er aukning um 17 prósent frá árinu á undan. Viðskipti innlent 1. febrúar 2024 21:23
Ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segist telja ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni þar sem mikil óvissa ríkir um öryggi á svæðinu. Innlent 1. febrúar 2024 06:31
Reykjanesbrautinni gæti verið lokað en ófremdarástand ólíklegt Reykjanesbrautin er á óvissustigi sem þýðir að mögulega gæti þurft að loka henni. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er þó ólíklegt að vandræðaástand myndist þar líkt og hefur gerst áður. Innlent 31. janúar 2024 11:47
Flestum flugferðum frestað og enginn á vellinum Flestum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið frestað í dag. Komur og brottfarir verða ekki fyrr en síðdegis og eða í kvöld og nótt, eftir að óveður sem spáð hefur verið á suðvesturhorninu er gengið yfir. Þá hefur röskun orðið á innanlandsflugi. Innlent 31. janúar 2024 11:34
Komst ekki á samgöngufund vegna samgöngutruflana Íbúafundi um samgöngur við Vestmannaeyjar, sem fyrirhugaður var í kvöld, hefur verið aflýst. Ástæðan er sú að flugi innviðaráðherra var aflýst. Bæjarstjórinn lætur kaldhæðnina í því ekki fram hjá sér fara. Innlent 30. janúar 2024 19:50
Flugumferðarstjórar búnir að semja Flugumferðarstjórar og Isavia leiddu kjaradeilu sína til lykta í gærkvöldi, þegar skammtímakjarasamningur var undirritaður. Innlent 30. janúar 2024 14:36
Tengifarþegar geta nú sjálfir bókað ferð með stuttri viðdvöl á Íslandi Flugfélagið Play býður nú tengifarþegum sínum að bóka sjálfir dvöl á Íslandi án aukakostnaðar þegar þeir fljúga á milli Norður Ameríku og Evrópu. Með nýju viðmóti á vef flugfélagsins geta farþegarnir sjálfir klárað slíka bókun og þar með dvalið á Íslandi í allt að tíu daga áður en þeir halda för sinni áfram yfir Atlantshafið. Viðskipti innlent 30. janúar 2024 10:41
Ryanair til í að kaupa afpantaðar Boeing þotur Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair segist vera reiðubúið til þess að kaupa Boeing farþegaþotur af gerðinni Max 10 sem afpantaðar hafa verið af bandarískum flugfélögum, á réttu verði. Viðskipti erlent 29. janúar 2024 11:15
Funheitar og fágaðar flugkonur Flugmannastarfið var lengi álitið karlastarf hér á landi eða til ársins 1984 þegar fyrsta konan, Sigríður Einarsdóttir, hóf atvinnuflugmannsferil sinn hjá Flugleiðum. Mikil fjölgun hefur orðið af kvenkyns flugmönnum hér á landi síðastliðin ár og er hlutfall kvenna í stéttinni með því hæsta í heiminum. Lífið 26. janúar 2024 10:12
Ekki fallist á að fordómar gegn múslimum hafi verið ástæðan Lögreglustjórinn á Suðurnesjum braut ekki lög með því að endurnýja ekki ráðningu manns í starf landamæravarðar á Keflavíkurflugvelli sem taldi sig vera mismunað vegna trúar sinnar. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar jafnréttismála. Innlent 26. janúar 2024 08:57
Telja brotið á mannréttindum flugfólks ADHD samtökin telja ljóst að brotið sé með margvíslegum hætti á ýmsum grundvallarréttindum fólks sem starfar við flug á Íslandi með innleiðingu skimana flugáhafna vegna notkunar geðvirkra efna á borð við lyfja við ADHD. Samtökin kalla eftir skýringum frá Samgöngustofu, Isavia, íslensku flugfélögunum og fleirum. Innlent 25. janúar 2024 10:50
Rask á flugi í fyrramálið vegna veðurs Flugi Play til Frankfurt í fyrramálið hefur verið aflýst vegna óveðurs en gul viðvörun tekur gildi í nótt. Þá hefur bæði brottförum til Evrópu og komum frá Bandaríkjunum verið seinkað. Innlent 24. janúar 2024 17:57
Framhjól Boeing 757 féll af flugvélinni Framhjól á Boeing 757 farþegaþotu í eigu bandaríska flugfélagsins Delta féll af þotunni á alþjóðaflugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum á laugardag skömmu fyrir ætlað flugtak. Erlent 24. janúar 2024 14:47
Óánægður með viðbragðsleysi vegna lögbrota flugfélaganna Tíu flugfélög afhenda ekki íslenskum yfirvöldum farþegalista við komuna hingað til lands frá Schengen-löndum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir listana mikilvæga fyrir lögregluna en dæmi eru um að erlendir brotamenn komist hingað til lands með þessum hætti. Innlent 24. janúar 2024 12:07
Dæmi um að flugfélög afhendi ekki farþegalista Tíu flugfélög skila ekki farþegalistum til yfirvalda sem hefur þau áhrif að lögbundin greining á farþegaupplýsingum getur ekki farið fram. Innlent 24. janúar 2024 06:54
Leigja tvær nýjar Airbus-þotur Icelandair og CDB Aviation hafa undirritað samninga um langtímaleigu á tveimur nýjum Airbus A321LR-þotum til afhendingar á seinni hluta árs 2025. Viðskipti innlent 22. janúar 2024 17:49
Halla lítur í kringum sig Halla María Svansdóttir, veitingakona í Grindavík sem rekið hefur veitingastaðinn hjá Höllu í heimabæ sínum, segir tíma til kominn að vera raunsæ og hugsa um sjálfan sig. Hún leitar að atvinnuhúsnæði til leigu í eitt til tvö ár. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 13:55