Kólumbía

Kólumbía

Höfuðborg: Bógóta. Mannfjöldi: 52,3 milljónir (2025). Flatarmál: 1.141.748 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Senda her­menn gegn glæpa­sam­tökum í „bak­garðinum“

Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja ólmir senda hermenn til Mið- og Suður-Ameríku, þar sem þeir eiga að herja á leiðtoga og meðlimi glæpasamtaka sem smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Á undanförnum mánuðum hafa Bandaríkjamenn fellt fleiri en tvö hundruð manns í loftárásum á meinta smyglara sem eiga að hafa verið að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stúlkan breytti frá­sögninni og Högna sleppt úr fangelsi

Högni Kjartan Þorkelsson er laus úr haldi lögreglunnar í Medellín í Kólumbíu. Hann hafði verið sakaður um að brjóta kynferðislega á sextán ára stúlku en var sleppt í síðasta mánuði, eftir að stúlkan breytti framburði sínum. Í samtali við Heimildina segist lögmaður Högna vonast til þess að málinu verði vísað frá.

Innlent
Fréttamynd

Shakira sýknuð

Kólumbíska söngkonan Shakira hefur verið sýknuð í hæstarétti Spánar í stórfelldu skattamáli sem teygir sig aftur til ársins 2011. Ríkissjóði Spánar hefur verið gert að endurgreiða tónlistarkonunni rúmlega 60 milljónir evra (rúmir 8,6 milljarðar króna) vegna málsins.

Tónlist
Fréttamynd

Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag

Juan Camilo Román Estrada er maður sem flestir ættu að kannast við þrátt fyrir að gera sér ekki endilega grein fyrir því. Auglýsingar, leiksviðið, þættir og kvikmyndir er meðal þess sem hann hefur tekið sér fyrir hendur á þeim átján árum sem hann hefur verið hér á landi.

Lífið
Fréttamynd

Þúsundir Kólumbíumanna mót­mæltu hótunum Trump

Þúsundir mótmæltu í borgum Kólumbíu í gær, í kjölfar hótana Donald Trump Bandaríkjaforseta um mögulegar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Mótmælendur voru afar harðorðir í garð forsetans. „Trump er djöfullinn, hann er hræðilegasta manneskja í heimi,“ hefur Guardian eftir einum þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu

Sjálfstæðiskonan og fyrrum ráðherran Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir átti 35 ára afmæli í gær og naut dagsins á fjarlægum slóðum. Skvísan er stödd í Kólumbíu þar sem hún fagnaði brúðkaupi vina sinna Davíðs Þorlákssonar og Daniels Barrios Castilla. 

Lífið
Fréttamynd

Engin heimild til að granda skipum vegna gruns um smygl við Ís­land

Hvorki íslensk lög né alþjóðasamningar sem Ísland á aðild að veita yfirvöldum hér heimild til þess að granda skipum á hafsvæðinu við landið eingöngu vegna gruns um fíkniefnasmygl. Bandaríkjastjórn hefur sprengt upp fjölda báta og drepið tugi manna í árásum á meinta smyglbáta að undanförnu.

Innlent
Fréttamynd

Af­tökur á meintum smyglurum „ekki morð“ heldur „vörn við eitri“

Bandaríkjamenn hafa undanfarnar drepið fjölda manns um borð í bátum undan ströndum Venesúela og Kólumbíu án dóms og laga eða mikils rökstuðnings. Stjórn Trump segir alla bátana hafa verið á leið til Bandaríkjanna með sendingar af fíkniefnum. Öldungadeildarþingmaður segir „raunhæfan möguleika“ á loftárásum á Venesúela.

Erlent
Fréttamynd

Nýr kókaínkóngur í Mexíkó

Kókaín hefur aldrei verið ódýrara né hreinna í Bandaríkjunum en það er nú. Neysla þess hefur aukist til muna á undanförnum árum, samhliða umfangsmiklum aðgerðum gegn neyslu fentanýls í Bandaríkjunum og gegn framleiðslu þess í Mexíkó.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert sem bendi til þess að Víðir hafi stigið yfir strikið

Sérfræðingur í stjórnsýslurétti segir ekkert komið fram svo hægt sé að slá því föstu að formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis hafi brotið gegn lögum eða reglum með pólitískum afskiptum sínum af störfum Útlendingastofnunar. Málefnaleg rök geti legið fyrir því að Oscar Bocanegra hafi verið einn tekinn út fyrir sviga af þeim nítján sem voru á framkvæmdarlista um brottvísun.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta eru al­veg galin vinnu­brögð“

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar Alþingis, gefur lítið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðunnar og segir að auðvitað sé um pólitísk afskipti að ræða. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir vinnubrögð Víðis algjörlega galin.

Innlent
Fréttamynd

For­stjóri Út­lendinga­stofnunar vildi skýr svör frá Víði um um­sókn Os­cars

Forstjóri Útlendingastofnunar fór í tölvupósti fram á að fá skýr svör frá Víði Reynissyni, formanni allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis, um það hvort undirnefndi nefndarinnar hygðist veita Oscari Boganegra ríkisborgararétt. Átján aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem er til skoðunar að veita ríkisborgararétt, fengu ekki sömu meðferð.

Innlent
Fréttamynd

Brott­vísun Oscars frestað

Brottvísun Oscars Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs sem til hefur staðið að senda úr landi, verður frestað þar til búið er að fara yfir umsókn hans um íslenskan ríkisborgararétt.

Innlent
Fréttamynd

Oscar fluttur úr landi á þriðju­dag

Oscar Andres Florez Bocanegra, sautján ára drengur frá Kólumbíu verður fluttur úr landi þriðjudaginn 3. júní. Þessu greinir fósturfaðir hans frá og segir fjölskylduna ætla njóta tímans sem þau hafa saman. Hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir aðgerðarleysi í máli drengsins.

Innlent
Fréttamynd

Oscar hafi veitt tak­mörkuð svör

Kærunefnd útlendingamála hefur birt umdeildan úrskurð sinn þar sem umsókn hins sautján ára gamla Oscar Anders Florez Bocanegra um landvistarleyfi er hafnað. Boðað hefur verið til mótmæla við upphaf þingfundar við Austurvöll í dag en fósturforeldrar Oscars segjast ráðalaus vegna málsins, engin svör fáist frá ráðamönnum og embættismenn ráði för.

Innlent
Fréttamynd

„Hafa ekki lyft litla fingri í máli Oscars“

Fósturforeldrar Oscars Anders Florez Bocanegra, sem til stendur að vísa úr landi í upphafi júní, segja að hann verði hætt kominn endi hann aftur út á götum Bogotá í Kólumbíu. Síðast hafi hann þurft að þola hræðilegar raunir. Ákvörðunin sé mikið áfall. 

Innlent