Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttamynd

Pirraður yfir því hvernig Baldur yfir­gaf Stjörnuna

Einar Karl Birgis­son, for­maður körfu­knatt­leiks­deildar Stjörnunnar, segir pirring sem er til staðar sökum brott­hvarfs Baldurs Þórs Ragnars­sonar úr starfi þjálfara karla­lið félagsins ekki stafa af því að hann hafi farið, heldur því með hvaða hætti hann hafi yfir­gefið Stjörnuna. Leit að nýjum þjálfara gengur vel og er búist við því að form­legar viðræður hefjist í þessari viku.

Körfubolti
Fréttamynd

„Stjörnufólk er pirrað“

Hlynur Bæringsson segir stuðningsmenn Stjörnunnar pirraða yfir skiptum þjálfarans Baldurs Þórs Ragnarssonar innan Garðabæjar frá Stjörnunni yfir til Álftaness í Bónus deildinni í körfubolta. 

Körfubolti
Fréttamynd

Dagur snýr heim úr at­vinnu­mennsku

Örvhenta skyttan Dagur Sverrir Kristjánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna og mun spila með liðinu í Olís deild karla á næsta tímabili. Hann snýr því heim til Íslands úr atvinnumennskunni.

Handbolti
Fréttamynd

„Þú þarft raun­veru­lega að þjást“

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segir að það hafi verið extra sætt að slá KR úr leik í Mjólkurbikar karla í kvöld, eftir að hafa tapað fyrir KR-ingum í Bestu-deildinni fyrir aðeins fimm dögum síðan.

Fótbolti
Fréttamynd

Röð á­falla en trúin til staðar: „Ekkert pláss fyrir bull“

Baldur Þór Ragnars­son, þjálfari ríkjandi Ís­lands­meistara Stjörnunar, segir trúnna enn til staðar innan liðsins gagn­vart því að hafa betur gegn Tindastól í odda­leik í undanúr­slitum Bónus deildarinnar í kvöld þrátt fyrir að hvert áfallið á fætur öðru hafi dunið á liðinu.

Körfubolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum

Stjarnan og ÍA áttust við í fimmtu umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í dag. Skagamenn voru sterkari aðilinn og uppskáru verðskuldaðan sigur. Stjarnan braut ísinn með marki frá Benedikt Warén og leiddi í hálfleik en Markús Páll Ellertsson jafnaði metin í síðari hálfleik og skömmu fyrir leikslok bætti Viktor Jónsson öðru marki Skagamanna við. Lokastaðan 1-2 fyrir ÍA og fyrsti sigur þeirra gulklæddu staðreynd.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Stjörnu­fólk stendur í ströngu á sunnu­daginn

Það stefnir allt í afar spennandi sunnudag fyrir stuðningsfólk Stjörnunnar. Karlalið félagsins tekur á móti ÍA í Bestu deild karla og stuttu seinna getur Stjarnan tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta.

Körfubolti