Valur - Grindavík | Íslandsmeistararnir að leita að sínum fyrsta sigri Hér fer fram textalýsing frá leik Vals og Grindavíkur í annarri umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Flautað verður til leiks í N1-höllinni klukkan 19.30. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Körfubolti 16.10.2026 18:47
Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Hinn 17 ára gamli Mattías Kjeld hefur nú útskýrt af hverju hann yfirgaf uppeldisfélagið sitt Val í vor sem endaði með því að hann sló í gegn hjá Gróttu og var keyptur til KR. Hann fékk þau skilaboð hjá Val að hugarfarið væri ekki nógu gott og að leikmenn vildu ekki hafa hann í liðinu. Íslenski boltinn 15.10.2026 21:39
Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Kanadíski körfuboltaþjálfarinn Jamil Abiad, þjálfari Vals í Bónus-deild kvenna, hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi íslenska kvennalandsliðsins. Körfubolti 15.10.2026 20:43
Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Sérfræðingar Körfuboltakvölds voru í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu Stjörnunnar í fyrstu umferð Bónus deildarinnar á dögunum. Körfubolti 12. október 2026 12:31
Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Fjórir leikir voru á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í gær. ÍBV féll úr deildinni, FH bjargaði sér og Akureyrarliðin heyja áfram harða baráttu. KR fór langt með að tryggja sér annað sætið. Íslenski boltinn 11. október 2026 10:17
Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur FH tryggði áframhaldandi veru sína í Bestu deild karla með 5–3 sigri á Val á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Gils Gíslason fór á kostum hjá gestunum, skoraði þrennu og lagði upp eitt mark. FH var þremur mörkum yfir í hálfleik og þótt Valsmenn sýndu meiri kraft eftir hlé náðu þeir aldrei að brúa bilið. Íslenski boltinn 10. október 2026 15:55
Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Valur sigraði Fram, 30-25, í hörkuleik í Olís deild kvenna í dag og batt þar með enda á sigurgöngu Framkvenna sem höfðu unnið alla fjóra leiki sína á tímabilinu fyrir viðureignina. Handbolti 10. október 2026 13:45
FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Olís deildar lið Fram og KA eru úr leik í Powerade bikarnum í handbolta eftir leiki kvöldsins í sextán liða úrslitum keppninnar. Framarar fengu á sig 46 mörk gegn FH. Handbolti 9. október 2026 21:11
„Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ Valsmenn byrjuðu vel í Bónus deild karla í gær og virtist ekki koma að sök að liðið sé að tefla fram ódýrara liði en síðustu ár. Körfubolti 9. október 2026 12:32
Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Miðjumaðurinn Tumi Fannar Gunnarsson er genginn í raðir knattspyrnuliðs Vals og hefur skrifað undir samning sem gildir til næstu þriggja ára. Íslenski boltinn 9. október 2026 10:33
16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti sögulega frumraun fyrir Val í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Hann var bestur á vellinum í öruggum sigri á Stjörnunni. Körfubolti 8. október 2026 22:25
Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson stal senunni í öruggum 90-77 sigri Vals á Stjörnunni í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Frammistaða drengsins var lygileg. Körfubolti 8. október 2026 21:00
Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Þrátt fyrir að Jeremy Pargo hafi ákveðið að taka slaginn með Grindvíkingum áfram, eftir eina „ótrúlegustu frammistöðu sem sést hefur á íþróttavelli á Íslandi“, er Íslandsmeisturunum aðeins spáð 5. sæti í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Keflavík, Valur og Njarðvík verða einnig í neðri hluta úrslitakeppnissætanna samkvæmt sérfræðingunum. Körfubolti 7. október 2026 12:00
KR vann erkifjendurna sannfærandi Valur tók á móti KR í sannkölluðum Reykjavíkurslag í Bónus-deild kvenna í körfubolta. KR náði að vinna erkifjendurna á útivelli og endaði leikurinn 84-68. Körfubolti 6. október 2026 21:08
Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals. Handbolti 6. október 2026 18:25
Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum fóru vandlega yfir hið svakalega fall Vals í þætti dagsins, nú þegar ljóst er að liðið spilar í næstefstu deild næsta sumar í fyrsta sinn í sögunni. Þessa stöðu segja þeir mega rekja til „galinna“ ákvarðana ráðamanna félagsins. Íslenski boltinn 4. október 2026 22:31
Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Tveir leikir voru á dagskrá í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í gær þar sem þrjú lið börðust um að forðast tvö fallsæti. Þór/KA hélt sér uppi með sigri í Víkinni og felldi þar með Víking og Val. Íslenski boltinn 3. október 2026 11:03
„Maður uppsker eins og maður sáir“ Þrátt fyrir 2-1 sigur gegn Fram í lokaumferð Bestu deildar kvenna dugði niðurstaðan ekki til og Valur er fallið niður um deild. Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, segir fallið afar sárt. Sport 2. október 2026 22:07
Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Valskonur eru fallnar úr efstu deild kvenna í fótbolta í fyrsta sinn í sögunni. Sigur liðsins gegn Fram í lokaumferð Bestu deildarinnar í kvöld dugði ekki til að bjarga sæti liðsins þar sem að Þór/KA vann á sama tíma Víking Reykjavík í Fossvoginum og sendi þar með bæði Val og Víking Reykjavík niður í Lengjudeildina. Íslenski boltinn 2. október 2026 21:53
„Það er ekkert högg, það er bara að rísa“ Það var mikil sorg í herbúðum Vals þegar flautað var til leiksloka eftir 2-1 sigur gegn Fram í síðustu umferð Bestu deildar kvenna þegar ljóst var að liðið væri fallið niður um deild. Sport 2. október 2026 21:17
Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Þrír leikir fóru fram í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Vals komust aftur á sigurbraut á meðan að vandræði KA/Þórs héldu áfram. Þá átti Jóhanna Margrét Sigurðardóttir magnaðan leik í sigri Hauka. Handbolti 2. október 2026 21:14
Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum í Olís deildinni í kvöld þegar lið hans Valur vann Þór Ak. á Hlíðarenda í miklum markaleik. Lokatölur 40-35 sigur Vals Handbolti 2. október 2026 20:35
Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Þrjú lið berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur gætu fallið í fyrsta sinn og þurfa að treysta á jafntefli í Víkinni á milli Víkings og Þórs/KA sem bæði eiga á hættu að falla. Íslenski boltinn 2. október 2026 10:32
Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Valur fékk Íslandsmeistara Njarðvík í heimsókn í N1 höllina í kvöld þegar síðustu leikir fyrstu umferðar Bónus deild kvenna fóru fram. Eftir jafnan leik framan af stigu Valskonur á bensíngjöfina í fjórða leikhluta og fóru að lokum með öruggan og óvæntan þrettán stiga sigur 77-64. Körfubolti 30. september 2026 21:50