Wales

Wales

Höfuðborg: Cardiff. Mannfjöldi: 3,2 milljónir (2025). Flatarmál: 21.218 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Bonnie Tyler er látin

Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Átta­tíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss

Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Starmer segir af sér

Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. 

Erlent
Fréttamynd

Arnór Ingvi skoðar sín mál í janúar

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Ingvi Traustason, segir liðið hafa fundið ákveðnar leiðir í gegnum næsta mótherja sinn í Þjóðadeild UEFA sem það mun reyna nýta sér til sigurs. Arnór hefur verið að ganga í gegnum krefjandi tíma með félagsliði í Svíþjóð og segir landsliðsverkefnið koma á fullkomnum tímapunkti.

Fótbolti
Fréttamynd

Grímur leitar að bræðrum sínum

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, reynir þessa dagana að komast í samband við tvo karlmenn sem hann telur vera bræður sína. Hann biður alla sem hafa tengingar í Wales að deila FB-færslu sinni í þeirri von að hún nái til skyldmenna sinna.

Lífið
Fréttamynd

Fór í forn­fræði og guð­fræði en gat ekki flúið ör­lögin

Sigurður Ingvarsson stefndi á fræðimennsku eftir menntaskóla en gat ekki flúið þau örlög að verða leikari. Hann leikur í nýjustu mynd Baltasars Kormáks, Snertingu, og stígur á svið í rokksöngleiknum Eitraðri lítilli pillu eftir áramót. Í vor fór hann á sjó eftir mönun tengdaföður síns og segir það hafa verið ólýsanlega erfitt.

Lífið
Fréttamynd

Kirkjugarður í Wales varð að vígvelli

Nýlega opinberað myndband sýnir hvernig hópur manna barðist með hömrum, kylfum, hnífum, öxum og sveðjum í Morriston kirkjugarðinum í Swansea í Wales í fyrra. Þrettán hafa verið dæmdir vegna átakanna en þau leiddu til þess að nokkrir særðust alvarlega, jarðarfarir voru truflaðar og legsteinar skemmdir.

Erlent
Fréttamynd

Bale leggur skóna á hilluna

Gareth Bale, leikmaður Los Angeles FC og velska landsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt að skórnir séu komnir upp í hillu. Bale er aðeins 33 ára gamall.

Fótbolti