Fjölmiðlar

Fréttamynd

Fjöru­tíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“

Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Stöðvar 2 og af því tilefni verður sýndur afmælisþáttur í kvöld þar sem litið verður yfir farin veg og rætt við ýmsar stjörnur, gamlar og nýjar, sem settu svip sinn á stöðina. Vala Matt verður á sínum stað með græna pennan og Simmi Vill mætir með handrið sem hann braut eftirminnilega af Fokker-flugvél við tökur á Idol stjörnuleit.

Lífið
Fréttamynd

Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv

Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki

Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða

Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim.

Innlent
Fréttamynd

Til varnar tjáningar­frelsi

Einstaklingur, tveir vinir eða tvær vinkonur setjast niður einu sinni til tvisvar í viku, ræða um daginn og veginn, fá stundum til sín gesti og ræða ýmist um sögulega atburði, snyrtivörur, viðskipti, morðgátur, stjórnmál, fótbolta, menningu, skák eða blaðra nánast samhengislaust eins og einnig eru dæmi um. Hugðarefnin sem um er fjallað í hlaðvörpum eru nær óþrjótandi og upptalningin hér að framan langt því frá að vera tæmandi. Spjallið er tekið upp og sett á netið, þar sem flestir nálgast það á þar til gerðum veitum.

Skoðun
Fréttamynd

Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð

Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á­taka­laust að breyta rót­grónu fé­lagi

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.

Lífið
Fréttamynd

Laug að Morgun­blaðinu um nýjan KFC-stað

Patrik Atlason, söngvari og KFC-erfingi, birti myndskeið og staðfesti í samtali við Morgunblaðið að opna ætti nýjan KFC-stað í húsnæði Lyfjavals við Hæðasmára í Kópavogi. Hann hefur nú beðist afsökunar á gríninu.

Innlent
Fréttamynd

Karl Th. jarð­sunginn í dag

Ritstjórinn Karl Th. Birgisson verður jarðsunginn í dag klukkan 15. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju en séra Davíð Þór Jónsson syngur yfir hinum látna.

Lífið
Fréttamynd

Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá

Allar tekjur sem Ríkisútvarpið hefur af auglýsingasölu umfram 2,8 milljarða verða dregnar frá útvarpsgjaldi fjölmiðilsins verði af nýju frumvarpi ráðherra. Hann leggur til breytingar á lögum um ríkismiðilinn en ætlar ríkinu sömuleiðis að taka á sig fjögurra milljarða skuld.

Innlent
Fréttamynd

Upp­sagnir hjá BBC og verk­föll mögu­leg

Töluverður niðurskurður á íþróttadeild breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur vakið hörð viðbrögð í Bretlandi. Starfsandi er sagður í sögulegri lægð eftir fordæmalausar breytingar.

Sport
Fréttamynd

Bannaði Trump að banna fjöl­miðla

Alríkisdómari í Washington DC hefur skipað Hvíta húsinu að veita þremur fjölmiðlum sem Donald Trump bannaði úr byggingunni í síðustu viku aftur aðgang að byggingunni. Samkvæmt úrskurðinum eiga miðlarnir að fá aðgang að Hvíta húsinu næstu fjórtán daga á meðan málið er til meðferðar fyrir dómi.

Erlent
Fréttamynd

Snið­ganga Hvíta húsið

Bandarísku fréttastöðvarnar Fox News, ABC, CBS og NBC hafa samþykkt að hætta að flytja fréttir af Hvíta húsi Donalds Trump Bandaríkjaforseta í mótmælaskyni við ákvörðun Hvíta hússins um að meina fréttafólki CNN, Politico og MS Now inngöngu í Hvíta húsið og á viðburði á vegum þess.

Erlent
Fréttamynd

„Norður­löndin eru ekki að eltast við skráningar­skyldu hlað­varpa“

Skoða á hvort hlaðvörp þurfi að skrá sig sem fjölmiðla þegar fjölmiðlalögum verður breytt, sagði Logi Einarsson menningarmálaráðherra á Alþingi. Hann sagðist einnig vera að kanna hvort hægt væri að skýra reglurnar með reglugerð. Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann á Alþingi hvort eðlilegt væri að fjölmiðlanefnd hótaði hlaðvarpsfólki dagsektum á meðan beðið væri eftir breytingum á fjölmiðlalögum.

Innlent
Fréttamynd

Í­hlutun SKE sögð „varpa skugga“ á vaxtará­form Ása

Óvissa um möguleg inngrip Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum varpar skugga á sókn félagsins, að mati greinenda IFS, sem segja íhlutun eftirlitsins koma á óvart. Verðmat á félaginu helst óbreytt og er það talið talsvert undirverðlagt á markaði.

Innherjamolar
Fréttamynd

Trump rekur CNN og fleiri fjöl­miðla úr Hvíta húsinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekið ákvörðun um að fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW verði tafalaust bannaður aðgangur að Hvíta húsinu. Hann sakar blaðamenn miðlanna um að hafa ítrekað birt falsfréttir er varða ríkisstjórn hans, hann sjálfan sem og Bandaríkin. Með þessu bætast blaðamenn miðlanna í sístækkandi hóp þeirra sem mega ekki stíga fæti inn á blaðamannafundi forsetans.

Erlent
Fréttamynd

Fjölmiðlahelsi

Staða fjölmiðlunar á Íslandi krefst róttækra breytinga á allri lagaumgjörðinni. Óumdeilt er að vandi einkarekinna fjölmiðla felst einkum og sér í lagi í því að tekjur þeirra dragast saman á meðan kostnaður, einkum við starfsmannahald, fer hækkandi.

Skoðun
Fréttamynd

„Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“

Flugskarpur, eiturfyndinn, víðlesinn, vinmargur, leiftrandi gáfaður, ritfær með afbrigðum, gæskuríkur, blíður og hrjúfur í senn, engum öðrum líkur og ekki alltaf sjálfum sér bestur. Þannig er Karls Th. Birgissonar, rithöfundar, útvarpsmanns og ritstjóra, minnst af þeim ótalmörgu sem rita minningarorð um manninn.

Lífið
Fréttamynd

Karl Th. Birgis­son er látinn

Karl Th. Birgisson, stjórnmálafræðingur, ritstjóri, útvarpsmaður og rithöfundur, er látinn 62 ára að aldri. Hann andaðist í nótt 16. september en Karl hafði átt við veikindi að stríða undanfarin ár.

Lífið
Fréttamynd

Stjórnar­ráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum

Stjórnarráðið segist hafa ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til íslenskra fjölmiðla í stað erlendra samfélagsmiðla og leitarvéla. Markmiðið sé að styrkja rekstur íslenskra fjölmiðla og draga úr því að auglýsingafé renni úr landi.

Innlent
Fréttamynd

Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri

Tillögur Sjálfstæðisflokksins um að taka Rúv af auglýsingamarkaði og takmarka starfsemina við rekstur Rásar 1 og menningarlegt hlutverk byggjast á borgaralegum hægrisjónarmiðum, segir Jens Garðar Helgason, varaformaður flokksins. Flokkurinn vilji afnema útvarpsgjaldið og veita Rúv einn milljarð króna á ári af fjárlögum.

Innlent
Fréttamynd

Tekur á­rásum á samfélagsmiðlum fagnandi

Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest.

Lífið