
Þýskaland

Dauðsföll og ringulreið í Þýskalandi og Austurríki vegna snjóþyngsla
Hátt viðbúnaðarstig er nú á Alpasvæðum Þýskalands og Austurríkis vegna gríðarlegra snjóþyngsla en að minnsta kosti tólf hafa látist vegna veðursins.

Fjórir fyrir rétt vegna ráns á 100 kílóa gullmynt í Berlín
Mennirnir eru grunaðir um að hafa stolið, brætt og selt 100 kílóa gullmynd af safni í Berlín á vordögum 2017.

Lögreglan dregur í efa lýsingu á árás á þýskan þingmann
Þingmaður Valkosts fyrir Þýskalands hlaut alvarlega höfuðáverka en ekkert bendir til þess að hann hafi verið barinn þar sem hann lá í jörðinni eins og hann lýsti.

Tvítugur maður handtekinn vegna birtingar persónuupplýsinga
Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið tvítugan mann vegna þjófnaðar og birtingar persónuupplýsinga hundruð stjórnmálamanna þar í landi.

Þingmaður þjóðernisflokks varð fyrir alvarlegri líkamsárás
Frank Magnitz, þýskur þingmaður þjóðernisflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD), varð fyrir alvarlegri líkamsárás í miðborg þýsku borgarinnar Bremen í gær.

Sjö látist í miklu fannfergi í Ölpunum
Minnst sjö létust um helgina eftir mikið fannfergi í Alpafjöllum í Evrópu. Mikil hætta er á snjóflóðum í Austurríki, Þýskalandi og á Ítalíu.

Táningur yfirheyrður í Þýskalandi vegna gagnalekans
Nítján ára gamall karlmaður hefur verið yfirheyrður af lögreglu í tengslum við umfangsmikinn gagnaleka þar sem persónuupplýsingum þýskra stjórnmálamanna voru birtar á netinu.

Vissu af gagnalekanum í Þýskalandi en létu lögreglu ekki vita
Upplýsingaöryggisstofnun Þýskalands vissi af tölvuinnbrotum sem áttu sér stað í desember en lögreglan fékk ekki að vita af þeim fyrr en á föstudag.

Stolnar persónuupplýsingar þýskra stjórnmálamanna birtar á netinu
Angela Merkel er á meðal þeirra sem lenti í árás óþekktra tölvuþrjóta.

Verðlaunablaðamaðurinn sem blekkti alla
Sautján klukkutímum áður en Claas Relotius tók við þýsku blaðamannaverðlaununum fyrir umfjöllun ársins barst honum tölvupóstur. Tölvupósturinn var sendur aðfaranótt 3. desember 2018 en þá um kvöldið voru verðlaunin veitt.

Skora á Þjóðverja að skila málverki sem nasistar stálu
Stjórnendur Uffizi-listasafnsins í Flórens hafa skorað á þýsku ríkisstjórnina að aðstoða við að ná til baka málverki sem nasistar stálu í seinni heimsstyrjöldinni.

Blaðamaður Spiegel safnaði fé til styrktar börnum á flótta en hirti það svo sjálfur
Þýski blaðamaðurinn Claas Relotius, sem hefur viðurkennt að hafa falsað viðtöl og skáldað viðmælendur, virðist hafa svikið fé út úr lesendum.

Verðlaunablaðamaður viðurkenndi að hafa skáldað fjölda frétta
Der Spiegel hefur beðið lesendur sína afsökunar og segir að málið sé mikið áfall og lágpunktur í 70 ára sögu miðilsins.

Enn leitað að árásarmanninum og þriðji látinn
Lögreglan í Frakklandi leitar enn að Chérif Chekatt, sem grunaður er um að hafa skotið minnst þrjá til bana í árás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudaginn.

Birta nafn og mynd af hinum grunaða í Strassborg
Lögregla í Frakklandi hefur óskað eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manninum sem skaut og drap tvo og særði fleiri á jólamarkaði í frönsku borginni Strassborg í gærkvöldi.

25 slökkviliðsmenn börðust við tonn af súkkulaði
Það var æði sérstakt útkallið sem slökkviliðsmenn í þýska bænum Werl fengu síðastliðinn mánudag. Tonn af fljótandi súkkulaði hafði sloppið úr súkkulaðitank

Fimm handteknir vegna skotárásarinnar í Strassborg
Mögulegt er talið að byssumaðurinn hafi flúið yfir landamærin til Þýskalands.

Pútín í skjalasafni Stasi
Lögregluskírteini Vladímírs Pútín, forseta Rússlands, fannst í skjalasafni Stasi, leyniþjónustu Austur-Þýskalands.

Söguleg stund þegar Angela Merkel steig úr formannsstól
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hélt í gær sína síðustu ræðu sem formaður Kristilegra demókrata. Hún mun þó áfram sitja sem kanslari til loka kjörtímabils. Merkel sagði flokkinn hafa breyst mikið í átján ára formannstíð hennar og að næsta formanns biðu erfið verkefni.

Stærsti flokkur Þýskalands valdi sér nýjan formann
Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel Þýskalandskanslara og stærsti þingflokkur Þýskalands, kaus í dag nýjan formann. Nýi formaðurinn tekur við formannsembættinu af Merkel sem mun þó sitja sem kanslari út kjörtímabilið, eða til ársins 2021, í seinasta lagi.

Merkel kom frjálslyndum viðhorfum til varnar í kveðjuræðu
Í kveðjuræðu sinni sem leiðtogi Kristilegra demókrata varaði Angela Merkel við áskorunum framundan eins og loftslagsbreytingum og útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.

Vilja slaka á móttökukröfum
Frakkar og Þjóðverjar leggja til að þau ríki Evrópusambandsins sem neita að taka á móti þeim fjölda flóttamanna sem kveðið er á um í samþykktum fái í staðinn að borga sig út úr samkomulaginu.

Loka um hundrað verslunum á Norðurlöndum og Þýskalandi
Ekki stendur til að loka verslunum Top-Toy á Íslandi.

Þungavigtarfólk stjórnmálanna minnist George Bush eldri
Stjórnmálafólk víðs vegar að úr heiminum minnist nú George H.W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hann lést upp úr klukkan tíu í gærkvöldi á heimili sínu í Houston í Bandaríkjunum, 94 ára að aldri. Meðal þeirra sem hafa minnst forsetans eru ýmist sitjandi eða fyrrverandi þjóðarleiðtogar þó nokkurra ríkja.

Flugvél Merkel þurfti að nauðlenda
Angela Merkel Þýskalandskanslari mun missa af setningarhátíð leiðtogafundar G20-ríkjanna í Argentínu eftir að nauðlenda þurfti flugvél hennar skömmu eftir flugtak.

Húsleit í höfuðstöðvum Deutsche Bank
Um 170 lögregluþjónar og aðrir embættismenn framkvæmdu húsleitir í sex skrifstofuhúsnæðum Deutsce Bank í Frankfurt í dag.

Fyrrum fangavörður á tíræðisaldri ákærður vegna Helfararinnar
Fyrrum fangavörður í útrýmingarbúðunum Mathausen, þeim stærstu í Austurríki, hefur verið ákærður fyrir hlut sinn í Helförinni.

Missti ökuskírteinið 49 mínútum eftir að hafa fengið það í hendurnar
Lögregla í Hemer svipti nýverið táning ökuskírteini 49 mínútum eftir að sá hafði fengið það í hendur.

Samdráttur í þýsku efnahagslífi í fyrsta sinn síðan 2015
Svo virðist sem að kólnandi hagkerfi séu víðar en á Íslandi, þar á meðal í Þýskalandi en erlendir fjölmiðlar greina nú frá því að samdráttur mælist nú í þýsku efnahagslífi í fyrsta sinn frá árinu 2015.

Mögulegur arftaki Merkel segir AfD vera nasistaflokk
Friedrich Merz, sem sækist eftir formannsembætti í CDU, hefur útilokað að eiga samstarf við hægripopúlistaflokkinn Alternativ für Deutschland (AfD).