
Þýskaland

Víðtækar verkfallsaðgerðir lama samgöngur
Tugþúsundir félagsmanna þýska verkalýðsfélagsins Verdi lögðu niður störf í morgun og hafa aðgerðirnar haft mikil á almenningssamgöngur í landinu það sem af er degi. Þannig munu ferðir strætisvagna og sporvagna í landinu að stærstum hluta liggja niðri.

Svíar tóku bronsið
Svíþjóð tryggði sér bronsið í leiknum um þriðja sætið gegn Alfreð Gíslasyni og læirsveinum hans á Evrópumeistaramótinu nú rétt í þessu.

Scholz varar við fjölgun í nýnasistahreyfingum
Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur lýst yfir áhyggjum af uppgangi öfgahægristefnu í landinu. Minningardagur helfararinnar var haldinn í gær og í ávarpi sínu varaði hann við fjölgun í nýnasistahreyfingum í Þýskalandi.

Evrópuráðherrar funda með utanríkisráðherrum Ísrael og Palestínu
Evrópskir utanríkisráðherrar funda í dag með utanríkisráðherrum Ísrael og Palestínu. Fundað verður með þeim í sitthvoru lagi. Ræða á við þá á um möguleika á friði í Ísrael og Palestínu og hvernig megi koma honum á eftir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hafnaði hugmyndum um tveggja ríkja lausn.

Myndaveisla: Grátlegt tap gegn Þýsklandi
Ísland tapaði fyrir Þýskalandi á EM í handbolta í gær þar sem lokatölur voru 26-24.

Myrti tvífara sinn til að flýja þrúgandi fjölskyldu
Réttarhöld yfir 24 ára gamalli þýsk-írakskri konu og 25 ára gömlum manni frá Kósovó hófust í Þýskalandi í gær. Parið er ákært fyrir hafa myrt 23 ára gamla konu í ágúst 2022. Hin ákærða kona er sögð hafa viljað sviðsetja dauða sinn í von um að flýja þrúgandi fjölskylduaðstæður.

Össur kaupir þýskt stoðtækjafyrirtæki
Össur hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutum þýska stoðtækjafyrirtækisins Fior & Gentz. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Össuri en tilkynnt var um kaupin rétt í þessu.

Verkfall truflar EM í handbolta
Evrópumótið í handbolta hefst á miðvikudaginn kemur en verkfallsaðferðir í Þýskalandi gætu sett sinn svip á fyrstu viku mótsins.

Þýskur sirkus engin fyrirstaða fyrir Rúrik
Rúrik Gíslason, fyrrverandi knattspyrnumaður og meðlimur strákabandsins Ice-Guys, stóð uppi sem sigurvegari í fyrstu þáttaröð þýska raunveruleikaþáttarins, Stars in der Manege, í gærkvöldi. Þættirnir gerast í sirkus. Greint er frá árangri Rúriks í þýskum miðlum.

Lést þegar vörubíl var ekið inn í hóp fólks
Þrjátíu og sjö ára gömul kona er látin og fjórir alvarlega slasaðir eftir að vörubíl var ekið inn í hóp fólks í þýska bænum Passau í suðausturhluta Þýskalands í morgun.

Kona Schumachers með strangar reglur um það hverjir geta hitt hann
Eiginkona Michaels Schumacher stjórnar því hverjir geta hitt ökuþórinn fyrrverandi og er með strangar reglur í þeim efnum.

Wolfgang Schäuble látinn
Wolfgang Schäuble, fyrrverandi fjármálaráðherra Þýskalands, er látinn, 81 árs að aldri. Hann var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara á tímum skuldakreppunnar á evrusvæðinu.

Kristilegir demókratar vilja senda hælisleitendur til þriðja ríkis
Kristilegi demókrataflokkurinn í Þýskalandi hyggst vinna aftur stuðning kjósenda með afdráttarlausum aðgerðum í útlendingamálum, sem munu meðal annars felast í því að senda hælisleitendur til þriðja ríkis á meðan unnið er úr umsóknum þeirra.

Flúði eftir fjársvik og nú talinn njósnari Rússa
Jan Marsalek, fyrrverandi rekstrarstjóri þýska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Wirecard, er grunaður um að hafa stolið tveimur milljörðum dala úr reikningum fyrirtækisins. Skömmu eftir að ljóst var að peningarnir voru horfnir, í júní 2020, steig Marsalek upp í einkaflugvél í Austurríki og var honum flogið til Belarús.

Grunur um að hinir handteknu tengist Hamas
Þýskir saksóknarar fullyrða að þeir þrír sem voru handteknir í Þýskalandi í dag og sá fjórði í Hollandi að beiðni þýskri yfirvalda hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þrír til viðbótar voru handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum í Danmörku. Allir sjö eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka.

Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð
Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil.

Stunur trufluðu dráttinn
Dráttur í riðla Evrópumeistaramótsins 2024 í Hamborg í dag var truflaður af kynferðislegum stunum. Stunurnar heyrðust fyrst eftir að Sviss hafði dregist í riðil með Skotlandi, Ungverjalandi og gestgjöfunum, Þýskalandi.

Mikið fannfergi veldur vandræðum í Þýskalandi
Mikið fannfergi hefur valdið vandræðum í suðurhluta Þýskalands. Flug- og lestarsamgöngur liggja niðri í München.

Söng á stærsta dansleik Þýskalands
„Þetta gekk glimrandi vel og það er mikill heiður að fá tækifæri af þessari stærðargráðu,“ segir Helga Dýrfinna Magnúsdóttir söngkona.

Segir Þjóðverja standa frammi fyrir nýjum raunveruleika
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segist ætla að leysa fjárlagakrísu ríkisins eins fljótt og auðið er. Hann segir að þýska ríkið standi frammi fyrir nýjum raunveruleika eftir áhrifamikinn úrskurð hæstaréttar Þýskalands sem leiddi til stærðarinnar holu í fjárlögum ríkisstjórnarinnar.

Smíða eftirlíkingu af skipi sem lagði grunninn að Íslandsbyggð
Næsta sumar verður hafin smíði á eftirlíkingu af rúmlega þúsund ára Knerri sem fannst í ágætu ástandi í Schleswig-Holstein í Þýskalandi. Gunnar Marel Eggertsson skipasmiður segir þessa skipagerð grundvöllinn að Íslandsbyggð sem hafi flutt hingað allt frá fólki og búfénaði til fyrstu kirkju landsins.

A WEIRD timing
Over the recent weeks, several leaders from the WEIRD (White/Western, Educated, Industrialized, Rich, and Developed/Democratic) world have expressed criticism for Israel's indiscriminate attacks in the occupied Palestinian territory (oPt).

Íhuga að banna útflutning á Ozempic
Þýska lyfjaeftirlitið íhugar að banna útflutning á þyngdarstjórnunar-og sykursýkislyfinu Ozempic til þess að koma í veg fyrir að birgðir af lyfinu klárist í landinu.

Gíslatöku á flugvellinum í Hamborg lokið
Gíslatöku við flugvöllinn í Hamborg er nú lokið samkvæmt upplýsingum frá þýskum yfirvöldum.

Flugvöllurinn í Hamborg enn lokaður vegna gíslatöku
Flugvöllurinn í Hamborg er enn lokaður vegna gíslatöku manns sem keyrði vopnaður byssu inn á völlinn í gærkvöld og skaut tveimur skotum upp í loft. Hann er talinn hafa rænt eigin barni í tengslum við forræðisdeilu.

Flugvellinum í Hamborg lokað: Keyrði vopnaður inn á flugvöll og skaut
Flugvellinum í Hamborg var lokað í kvöld eftir að maður keyrði inn á völlinn vopnaður byssu og skaut tvívegis upp í loft. Hann er talinn hafa haft í hyggju að ræna eigin börnum.

Dauðsföll af völdum stormsins Ciarán
Að minnsta kosti 13 dauðsföll eru rakin síðustu daga til stormsins Ciarán sem gengið hefur yfir Vestur-Evrópu.

Steinmeier biðst afsökunar á 300 þúsund morðum
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, tjáði í dag mikla skömm og baðst afsökunar á morðum sem samlandar hans frömdu á frumbyggjum í Tanzaníu á fyrri hluta 20. aldar.

Fimm látnir eftir að vinnupallar hrundu í Hamborg
Fimm iðnaðarmenn létust og einhverra er enn saknað eftir að vinnupallar hrundu á einu af stærstu iðnaðarsvæðum Hamborgar í Þýskalandi í morgun.

Handtökutilskipun á hendur þýsks stjórnmálamanns
Handtökutilskipun hefur verið gefin út á hendur hins 22 ára gamla Daniel Halemba, stjórnmálamanns á ríkisþingi í Bæjaralandi í Þýskalandi. Lögregla gefur ekki upp ástæður tilskipunarinnar en stjórnmálamaðurinn er meðlimur í háskólaklúbbi sem er til rannsóknar í tengslum við gripi með merkjum nasista.