Samfélagsmiðlar
1 2 3 4 5 6 … 73 ›
Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Evrópusambandið hótar að sekta Meta breyti þeir ekki ávanabindandi hönnun samfélagsmiðlanna Instagram og Facebook. Sektin getur numið allt að sex prósentum af heildarveltu þeirra á heimsvísu. Erlent 10.7.2026 16:12
Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Við fráfall Megasar fordæmdi myndlistarmaðurinn Jón Óskar þöggunina sem hann telur að Megas hafi mátt sæta á bæði Bylgjunni og þá ekki síður Ríkisútvarpinu, sem hefði átt að renna blóðið til skyldunnar miðað við lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Nú hafa starfsmenn Ríkisútvarpsins stigið fram og hafnað þessu. Lífið 10.7.2026 14:28
„Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Guðmundur Birkir Pálmason, sem betur er þekktur sem áhrifavaldurinn Gummi Kíró, fær blendnar viðtökur vegna erindis sem hann birti nýverið á Instagram-reikningi sínum. Í það minnsta sköpuðust fjörlegar umræður um erindi hans á Facebook-vegg Kára Sturlusonar framleiðanda þar sem erindi hans var greint í þaula. Lífið 10.7.2026 13:19
Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Kristrún Frostadóttir vakti greinilega athygli heimamanna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi í vikunni. Fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur fimmfaldast og farið úr 20 þúsundum í rúm 107 þúsund á fjórum dögum. Nýju fylgjendurnir virðast flestir vera Tyrkir og hafa færslur Kristrúnar fyllst af tyrkneskum ummælum. Lífið 10.7.2026 10:41
Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Karlmaður hefur verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn barni. Hann gekkst við því að hafa sent 15 ára stúlku mynd af getnaðarlim í fullri reisn auk skilaboðanna „riða i kvöld?“ Innlent 9.7.2026 12:56
Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Innlent 8.7.2026 21:34
Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Áfengisauglýsingar á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum hjá áhrifavöldum og öðrum opinberum persónum hafa aukist til muna undanfarin ár. Forvarnarsérfræðingur segir stjórnvöld hafa brugðist og kallar eftir því að áhrifavaldar axli ábyrgð. Innlent 7.7.2026 20:32
„Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Þjóðin veit varla hvernig hún á að vera nú þegar Magnús Þór Jónsson – betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Megas – er allur. Enda hvernig bera menn sig að við það að kveðja mann sem var „Enfant terrible“ í íslenskum menningarheimi? Lífið 7.7.2026 15:33
Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Um helmingur þýfisins sem var stolið af vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardagsins, 4. júlí, hefur ratað aftur heim en aðeins annar þjófurinn hefur verið handsamaður. Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, rifjaði það upp í viðtali á Vísi að Bubbi Morthens hafi aðstoðað sig við að endurheimta harðan disk fyrir um áratug síðan en hann hefur ekki enn verið ræstur út þessa ferðina. Innlent 6.7.2026 11:56
Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Sylvía Sól Geirdal Pétursdóttir, áhrifavaldur og starfsmaður Bláa lónsins, og Ólafur Valur Sigurðsson, vefsmiður hjá CCP, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Sylvía er elsta dóttir skemmtikraftsins Péturs Jóhanns Sigfússonar sem er því að verða afi. Lífið 6.7.2026 09:21
Var þetta sýndarsamráð? „Saka ráðherra um sýndarsamráð“. Þannig hljómaði fyrirsögn fréttar hjá RÚV, á dögunum.Vísað er í orð ungs fólks sem tók þátt í vinnustofu um símanotkun í skólum og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, á vegum barna- og menntamálaráðherra. Ungmennin eru fulltrúar Ungheilla, raddar unga fólksins hjá Barnaheillum, en vinnustofuna sótti ungt fólk víðs vegar að af landinu. Skoðun 3.7.2026 13:31
Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir var að skruna á Íslendingabók þegar hún rakst á formóður sína í þrettánda ættlið, Skólastiku Gamalíelsdóttur, sem var uppi á sextándu öld. Una vakti athygli á nafninu á Fésbókinni og opnaði þar ormagryfju fyrir grínara landsins. Nafnið á langa sögu þó aðeins einn Íslendingur hafi borið það. Menning 2.7.2026 15:09
Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Fyrirsætan og áhrifavaldurinn Nara Smith hefur opnað sig um það að tveggja ára dóttir hennar, Whimsy Lou, sé með krabbamein. Dóttirin greindist með krabbamein á seinni hluta síðasta árs en ekki kemur fram um hvers konar krabbamein ræðir. Lífið 2.7.2026 09:21
Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Listasýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merry sem taka yfir Listasafn Íslands í sumar hafa vakið mikla umræðu, trekkt að fjölda gesta en líka hlotið töluverða gagnrýni. Hallgrímur Helgason segir verk Bjarkar á sýningunni misjöfn, allt frá því að vera klisjukennd yfir í að vera stórkostleg. Hann veltir því upp hvort ekki sé kominn tími á sérstakt safn tileinkað Björk. Menning 1.7.2026 12:47
„Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafnar því alfarið að þeir sem aðhyllast „Já“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu séu málefnalegir en þeir sem tali fyrir „Nei-i“ séu óalandi og óferjandi rugludallar. Innlent 29.6.2026 15:22
„Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Umræðan um Evrópumálin og kosningarnar sem til stendur að halda 29. ágúst næstkomandi um hvort halda beri viðræðum áfram eða ekki eru að nálgast einhvers konar hástig. Sveinn Waage, ráðgjafi og fyrirlesari, segist ýmsu vanur en athugasemdir sem nú falla hafa gengið fram af honum. Innlent 29.6.2026 11:22
Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Samfélagsmiðlarnir Instagram og Facebook virðast liggja niðri en erlendir miðlar hafa greint frá því að um bilun sé að ræða og að villutilkynningar hafi og séu að berast notendum um allan heim. Innlent 23.6.2026 21:59
„Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hannes Pétursson skáld skrifar grein á Vísi þar sem hann fer hörðum orðum um heift Nei-sinna í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp viðræður við Evrópusambandið. Innlent 23.6.2026 13:20
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Á þessum árstíma fyllast samfélagsmiðlar af færslum og myndum af útskriftum og fagnaðarstundum. Þá minnir einnig Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri okkur árlega á þann mikilvæga sess sem menntun hefur í sögu bæjarins og lífi þúsunda Íslendinga. Skoðun 23.6.2026 08:02
Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Karlmaður hefur verið dæmdur til sextán mánaða fangelsisdóms, skilorðsbundið, fyrir að brjóta kynferðislega á átta stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára á um fjögurra mánaða tímabili árið 2022. Maðurinn er einnig dæmfur fyrir að hafa í fórum sínum mikið magn barnaníðsefnis. Innlent 23.6.2026 06:45
Gull og gimsteinar leynast víða Höllu Hrund Logadóttur kannast eflaust flestir Íslendingar við en hún er ein þeirra sem buðu sig fram til forseta vorið 2024 og var í þriðja sæti frambjóðenda þegar upp var staðið. Hún sinnir nú þingmennsku fyrir Framsóknarflokkin en er einnig fyrrverandi Orkumálastjóri, fyrst kvenna, og aðjúnkt við Harvard-háskólann. Lífið 20.6.2026 13:00
Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fundaði með fulltrúum kínverska samfélagsmiðilsins Tiktok um að hækka aldurstakmark á samfélagsmiðlum á Íslandi. Fulltrúar eru ekki sagðir hafa sett sig upp á móti slíkum hugmyndum. Innlent 19.6.2026 11:20
Kennarar óttast framkvæmd símafrís Grunnskólanemendur í Reykjavík mega hvorki nota farsíma né sambærileg snjalltæki á skólatíma næsta haust eftir að borgarstjórn samþykkti að taka upp símafrí í skólunum. Foreldrar fagna þessu en kennarar hafa áhyggjur af framkvæmdinni. Innlent 16.6.2026 21:29
Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Sífellt fleiri fulltrúar eldri kynslóðarinnar hafa látið til sín taka á samfélagsmiðlinum TikTok að undanförnu. Tvær sjötugar konur segja miðilinn stórskemmtilegan þrátt fyrir að þær þykist ekkert kunna á hann. Þær skilji ekki hvernig fólk nenni að horfa á vitleysuna í þeim. Lífið 16.6.2026 21:02
Dorrit á trampólíni Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, naut veðurblíðunnar á Íslandi um helgina og skellti sér á trampolín með barnabörnum Ólafs Ragnars Grímssonar. Dorrit hefur verið á miklu flakki síðustu misseri, ferðast meðal annars til Ítalíu, Ísraels og notið íslensku náttúrunnar með hundinum Samson. Lífið 15.6.2026 16:05
Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst Bretar ætla að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Sviðstjóri Netvís vill að sambærilegar reglur verði settar hér á landi sem fyrst. Innlent 15.6.2026 13:20
Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að börnum yngri en 16 ára verði bannað að nota samfélagsmiðla en verði bannið samþykkt á þingi muni það taka gildi vorið 2027. Hann segir, í ræðu sinni í Downingstræti, að samfélagsmiðlar geri börn óhamingjusöm, auðveldi eineltisfólki að níðast á börnum og séu „hannaðir til að vera ávanabindandi“. Erlent 15.6.2026 08:19
Facebook lá niðri Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri í um klukkustund síðdegis í dag, samkvæmt upplýsingum frá vefsíðunni Downdetector. Erlent 12.6.2026 13:50
Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum Rúv. Innlent 9.6.2026 14:53
Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Áhrifavaldurinn Lára Clausen biðlar til almennings að hafa augun pírð en hvítum Ford Mustang var stolið úr læstum bílakjallara við heimili hennar að morgni föstudags. Lífið 8.6.2026 15:30