
Auglýsinga- og markaðsmál

Styrkleiki en ekki aumingjaskapur að þora að hætta við og prófa sig áfram
„Ég man mómentið þegar himnarnir hreinlega opnuðust,“ segir Katrín Aagestad Gunnarsdóttir og skælbrosir þegar hún rifjar upp þá tilfinningu sem fylgdi að vera loksins búin að finna sína rétta hillu.

Ólafur tekur við stöðu Ólafs hjá Carbfix
Ólafur Elínarson hefur verið ráðinn til Carbfix þar sem hann mun starfa að samskiptamálum og samfélagstengslum fyrir hönd fyrirtækisins.

Rúmlega áttatíu tilkynningar vegna auglýsinga á útlensku
Meira en áttatíu tilkynningar hafa borist Neytendastofu vegna auglýsinga á öðrum tungumálum en íslensku síðan viljayfirlýsing var undirrituð um íslenskuátak í auglýsingagerð fyrir tæpum þremur vikum. Yfirlögfræðingur hjá Neytendastofu segir tilkynningum hafa fjölgað mjög.

RÚV uppfærir verðskrána og hættir að rukka fyrir táknið
Ríkisútvarpið hefur breytt gjaldskránni fyrir svokallaðar Jólakveðjur Ríkisútvarpsins, þar sem kveðjur landsmanna til ástvina eru lesnar upp á Rás 1 að kvöldi 22. desember og alla Þorláksmessu.

Reikna með því að Bonaqua nái Toppstölunum aftur
Forsvarsmenn Coca Cola á Íslandi segja sölu á Bonaqua sódavatninu eftir að nafninu var breytt vera á áætlun sem fyrirtækið hafi sett sér í byrjun júlí þegar nafni drykksins var breytt úr Toppur.

Kynþáttahyggja í stjórn HSÍ
Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur gert samning við ísraelska færslufyrirtækið Rapyd um að fyrirtækið styrki íþróttafólk innan sambandsins. Þessir styrkir hafa sætt gagnrýni vegna þess að Rapyd starfar í landránsbyggðum Ísraela í Palestínu sem eru skýlaust brot á alþjóðalögum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna.

Helmingi sagt upp hjá KOM og tveir eigendur keyptir út
Fjórum starfsmönnum, KOM, elsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði almannatengsla, hefur verið sagt upp störfum. Eftir uppsagnirnar starfa fjórir hjá fyrirtækinu. Einn þriggja eigenda félagsins stefnir að því kaupa hina tvo út úr félaginu.

Þessir eru tilnefndir til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna
Tilnefningar til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2023 voru kynntar nú rétt í þessu, í Eddu, húsi íslenskra fræða.

Cybertruck þeysist um Ísland í kynningarmyndbandi
Cybertruck, nýjasta afurð bandaríska bílaframleiðandans Tesla, var formlega settur á sölu í gær. Trukkurinn var kynntur með myndskeiði sem tekið var upp hér á landi.

„Þetta líktist helst rokktónleikum“
Svartur föstudagur, einn stærsti verslunardagur ársins, er í dag. Fjöldi verslana bauð upp á afslátt í dag, en sumar þeirra fóru fjölbreyttari leiðir við að halda upp á daginn. Dagurinn er að bandarískri fyrirmynd og markar upphaf jólainnkaupatímabilsins.

Aukin skilvirkni í samrunamálum
Gagnrýnisraddir um málsmeðferð samrunamála hjá Samkeppniseftirlitinu hafa títt komið fram og þá einkum varðandi málshraða. Eftirlit með samrunum byggir að mestu leyti á skyldu fyrirtækja til þess að tilkynna Samkeppniseftirlitinu um samruna yfir tilteknum viðmiðunarmörkum. Meðferð þessara mála er bundinn ströngum tímamörkum í lögum og skipt upp í tvo númeraða fasa.

Ekki næst í forystu HSÍ vegna samningsins við Arnarlax
Forystumenn HSÍ svara engum símum en samkvæmt heimildum Vísis munu þeir nú vera önnum kafnir við það, í sínum herbúðum, að hnoða saman yfirlýsingu vegna styrkarsamnings við Arnarlax.

Telur að formaður HSÍ eigi að segja af sér
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens bætist í hóp þeirra sem fordæma að HSÍ hafi gert styrktarsamning við sjókvíaeldisfyrirtækið Arnarlax. Hann er skorinorður og segir að formaður HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, eigi að segja af sér – umsvifalaust.

Nú eru þeir strákarnir þeirra
Hvernig gat þetta gerst, að Handknattleikssamband Íslands gerði samning við Arnarlax, þá norsku aurgoða sem hafa hreiðrað um sig í fjörðum landsins og eru að þar leggja lífríkið í rúst? Formaður HSÍ hefur gerst sekur um alvarlegan dómgreindarbrest og ætti að segja af sér strax.

Íþróttaþvottur á landsliðstreyjum
Í gær birtust fréttir af því að HSÍ væri komið með nýjan bakhjarl. Þar er um að ræða Arnarlax, stærsta sjókvíaeldisfyrirtæki landsins.

Arnar Jón til Good Good
Íslenska nýsköpunar- og matvælafyrirtækið GOOD GOOD hefur ráðið Arnar Jón Agnarsson í starf sölu- og markaðstjóra á Íslandi og fyrir Evrópumarkað.

Það er vandlifað í henni neysluveröld
Jólin eru handan við hornið og stærstu útsöludagar ársins yfirvofandi. Ég veit ekki með ykkur en ég fæ vanalega hnút í magann mörgum vikum áður en þeir skella á. Pressan til að stökkva á tilboð og nýta mér afslætti við kaup á hlutum sem ég þarf ekki, í þeim eina tilgangi að spara kannski nokkra þúsundkalla, verður mér einfaldlega ofviða.

Eigum kröfu á að íslenska sé notuð þar sem hægt er
Stjórnvöld hvetja landsmenn til að tilkynna auglýsingar hér á landi á öðrum tungumálum en íslensku. Fyrrverandi prófessor segir eðlilegt að auglýsa á ensku, svo lengi sem íslenskan sé líka til staðar.

Katrín frá Nova til Heimkaupa
Katrín Aagestad Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri markaðsmála Heimkaups samstæðunnar.

Hvetja almenning til að tilkynna auglýsingar á útlensku til stjórnvalda
Menningarráðherra og Neytendastofa hafa sent frá sér viljayfirlýsingu um átaksverkefni þar sem herör er skorin upp gegn auglýsingaefni sem ekki er á íslensku. Almenningur er hvattur til að tilkynna auglýsingaefni á öðrum málum en íslensku.

ÖBÍ stóð fyrir gjörningi með „blankaráni“
Öryrkjabandalag Íslands stóð í gær fyrir gjörningi fyrir utan höfuðstöðvar viðskiptabankanna þriggja. Bandalagið hefur undanfarið staðið fyrir gjörningnum undir nafninu Blanka.

„Ekki vera með leiðindi, veittu mér bara betri þjónustu“
„Ungt fólk er með allt annað viðhorf en við þekktum áður og eldra fólk er að breytast með því. Við hugsum öðruvísi en fyrir tuttugu árum og það á þá líka við um það hvernig við metum vöru og þjónustu sem við kaupum sem neytendur,“ segir Ólafur Þór Gylfason sviðsstjóri markaðsrannsókna Maskínu.

Eiturlyf auglýst til sölu á Facebook
Fíkniefnasalar auglýsa nú allar tegundir eiturlyfja til sölu á Facebook. Þeir kaupa auglýsingar sem fá að vera þar óáreittar.

Hagkaup aftur sektað vegna tax-free auglýsinga sinna
Neytendastofa hefur sektað Hagkaup um 850 þúsund króna vegna auglýsinga um Tax-free afslætti. Var annars vegar um að ræða auglýsingu þar sem prósentuhlutfall verðlækkunarinnar var ekki kynnt neytendum og hins vegar auglýsingar þar sem prósentuhlutfall verðlækkunar var ekki kynnt neytendum með nægilega skýrum hætti.

Tekur við markaðsmálunum hjá Advania
Einar Örn Sigurdórsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Advania. Hann hefur síðustu ár starfað sem ráðgjafi og hugmyndaleiðtogi í markaðssetningar- og mörkunarverkefnum í Bandaríkjunum, Japan og á Íslandi.

Nýr fasteignavefur Vísis í loftið
Nýr fasteignavefur á Vísi er kominn í loftið en í ár eru fimmtán ár síðan að vefurinn fór fyrst í loftið. Fasteignavefur Vísis er vinsælasti fasteignavefur landsins.

Forstjóri Rapyd vill eyða öllum Hamasliðum
„Þessi samskipti sem ég átti við CEO Rapyd slógu mig algjörlega út af laginu. Hryllingi er svarað með margföldum hryllingi,“ segir Tindur Hafsteinsson á Facebook-síðu sinni.

Díll aldarinnar reyndist kerfisvilla
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað leigusamning á Teslu 3 Long Range ólöglegan en tæpt var það.

Facebook án auglýsinga með nýrri áskriftarleið
Meta mun nú bjóða upp á mánaðarlega áskriftarleið þar sem notendur geta greitt til að nota samfélagsmiðlana Facebook og Instagram án auglýsinga. Enn verður boðið upp á ókeypis aðgang að miðlunum með auglýsingum.

Ef þingflokksformaðurinn tæki niður frjálshyggjugleraugun
Þó ekki væri nema bara af og til. Þá myndi blasa við honum að hugmyndir um að selja áfengi alls staðar allan sólarhringinn með heimsendingaþjónustu og tilheyrandi áfengisáróðri (auglýsingum) er ekki góð hugmynd.