Fjallamennska

Fyrirtæki hætta samstarfi við fjallagarp vegna ásakana um ofbeldi
Hvert fyrirtækið á fætur öðru hefur hætt samstarfi við fjallgöngugarpinn Tomasz Þór Veruson, eftir að kona sakaði hann um andlegt og líkamlegt ofbeldi á meðan tveggja ára sambandi þeirra stóð.

Náðu toppi Aconcagua
Arnar Hauksson fjallamaður og Sebastian Garcia leiðsögumaður hans náðu toppi Aconcagua nú rétt upp úr klukkan sex. Fjallið er hæsta fjall heims utan Asíu.

Eiga fimm hundruð metra eftir á toppinn
Þeir Arnar Hauksson og Sebastian Garcia eru nú nærri því að ná á topp Aconcague, hæsta fjalls Ameríku. Myndlistarmaðurinn Tolli ætlaði á topp fjallsins en hætt við í gær. Þeir Arnar og Sebastian áttu einungis fimm hundruð metra eftir á toppinn í morgun.

Tolli heltist úr lestinni en félagarnir halda ótrauðir á toppinn
Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens er hættur við að klífa Aconcauga, hæsta fjall Ameríku. Arnar Hauksson og Sebastian Garcia leiðsögumaður hans stefna á að ná toppi fjallsins á morgun.

Örmagna göngumanni bjargað við Keili
Björgunarsveitarfólk kom göngumanni til bjargar norðvestur af Keili eftir hádegið í dag eftir neyðarkall hans vegna þreytu. Viðkomandi hringdi í Neyðarlínuna klukkan 13 og var hann kominn upp í björgunarsveitarbíl þremur og hálfri klukkustund síðar.

Ætla sér að toppa Anconcagua í dag
Þeir Tolli Morthens, Arnar Hauksson og leiðsögumaður þeirra Sebastian Garcia eru á leið á topp hæsta fjalls Suður-Ameríku en samkvæmt ferðaáætlun verða þeir á toppnum síðar í dag.

Fyrirhugaður ísfirskur milljarðakláfur þarf í umhverfismat
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að fyrirhugaður kláfur í hlíðum Eyrarfjalls í Ísafirði þurfi í umhverfismat.

Hellisop fullt af ferðamönnum hrundi vikum síðar
Jöklaleiðsögumaður segir ferðamenn hér á landi oft hætta sér um of þegar þeir skoði íslenska jökla. Litlu geti um munað þegar komi að öryggi á jöklum enda séu þeir alltaf á hreyfingu.

„Var bara nógu spenntur og vitlaus“
Ævintýramennirnir Hilmar Ingimundarson og Rafn Emilsson gerðu sér lítið fyrir og klifruðu upp einn frægasta klifurvegg í heimi en þeir sigruðu hinn sögufræga El-Capitan vegg í Bandaríkjunum.

Vonast til þess að geta hafist handa í Kerlingarfjöllum næsta vor
Stefnt er að því að draga úr fyrirhugaðri uppbyggingu í Kerlingarfjöllum frá áformum sem kynnt voru árið 2018. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist næsta vor fáist tilskilin leyfi.

Hvannadalshnúkur vinsælasta áskorunin
Áhugi á útivist hefur stóraukist eftir að covid skall á og skipulagðar ferðir njóta mikilla vinsælda.

Sækja slasaðan göngumann á Strandir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð laust eftir klukkan hálf eitt vegna göngumanns sem rann niður fjallshlíð í Norðurfirði á Ströndum og slasaðist. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Lamaðist í skíðaslysi en stundar nú íþróttir af kappi
Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir lamaðist í alvarlegu skíðaslysi í Noregi árið 2011. Eftir slysið var ljóst að hún myndi eiga á brattann að sækja í bataferlinu sem fylgdi.

Fimm létust í óveðri á hæsta fjalli Evrópu
Fimm manns eru látnir eftir að hafa lent í miklu óveðri þegar verið var að klífa fjallið Elbrus í Kákasusfjöllum. Fjallið er 5.642 metra hátt, í Rússlandi og hæsta fjall Evrópu.

Íslensk hönnun valin sú besta fyrir útihlaupin
Jakkinn Straumnes frá 66°Norður var valinn besti útvistarjakkinn fyrir konur af dagblaðinu Independent. Jakkinn er skel og er bæði vatnsheld og andar vel.

„Ég fór eiginlega óvart inn í þetta“
„Þetta er eiginlega mitt lyf, þetta eru einu mómentin sem ég er chillaður í höfðinu. Þetta er mitt zen, ég er eiginlega bara í hugleiðslu í sautján tíma,“ segir hlauparinn og þjálfarinn Davíð Rúnar Bjarnason, sem um helgina tók þátt í krefjandi 112 kílómetra fjallahlaupi í Lúxemborg.

„Hornstrandirnar lokka mann að sér“
„Það er magnað að sigla út frá Ísafirði. Fjöllin á sjóndeildarhringnum virka mjög smá og lítilfjörleg,“ segir Steve Lewis, ævintýramaður og kvikmyndaframleiðandi.

Lyftu líparíthaugum af veginum heim
Grjóhrun hindraði för hópa Ferðamannafélags Íslands en göngugarparnir gerðu sér lítið fyrir og ýttu grjóthnullungum frá og út í á.

Göngumaðurinn fannst látinn
Göngumaður sem leitað var að á Seyðisfirði í dag fannst látinn í hlíðum Strandartinds á áttunda tímanum í kvöld. Um erlendan ferðamann er að ræða sem talið er að hafi fallið í klettum.

„Einn allra fallegasti staður landsins“
Garpur I. Elísabetarson tók á dögunum einstakt myndband af svokölluðum Uppgönguhrygg, rétt hjá Grænahrygg sem þekktur er fyrir einstakan lit sinn.

74 ára göngugarpur nálgast þrjú þúsund ferðir á Úlfarsfell
Sigmundur Stefánsson, 74 ára göngugarpur, viðurkennir að göngur sínar á Úlfarsfell séu orðnar að hálfgerðri áráttu. Hann hefur gengið á topp fjallsins yfir 2.700 sinnum.

Telur að lykkja á línu John Snorra hafi reynst örlagarík
Úkraínski fjallgöngugarpurinn Valentyn Sypavin telur að John Snorri Sigurjónsson hafi lent í eins konar sjálfheldu eftir að línan sem hann hékk í á niðurleið niður K2 hafi verið föst í lykkju. Hann telur ólíklegt að John Snorri hafi haft þrek til þess að koma sér úr þessum aðstæðum.

Þyrlan sótti slasaða konu á Úlfarsfell
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konu sem slasast hafði lítillega á Úlfarsfelli í kvöld.

Banaslys í Fljótsdal
Kona sem var í fjallgöngu í suðurdal Fljótsdals á Austurlandi í dag slasaðist og lést hún af völdum áverka sem hún varð fyrir.

Fingralauss fjallagarps saknað
Umfangsmikil leit að suður-kóreska fjallagarpinum Kim Hong-bin er í bígerð. Hans er saknað eftir að hann komst upp á topp hins 8.407 metra háa Broad Peak á landamærum Pakistans og Kína.


„Ég hélt að þetta væri búið hjá mér“
“Ég hélt þetta væri búið hjá mér. Ég sá svipinn hjá Heimi og Ank og ég sagði að þetta væri mjög slæmt,“ segir Everestfarinn og göngugarpurinn Sigurður Barni Sveinsson í hlaðvarpinu 24/7 með Begga Ólafs.

Leitin að John Snorra og samferðamönnum mikil áskorun
Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vann að gerð heimildarmyndar um leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, segir það mikla áskorun að standa í leitarleiðangri upp á fjallið og framleiða heimildarmynd á sama tíma. Hann er nú á leið upp fjallið til að leita að John Snorra og samferðamönnum hans.

Hefja leit að John Snorra og Sadpara
Sonur Sajid Sadpara sem fórst á K2 með John Snorra Sigurjónssyni í vetur og kanadísku vinur þeirra eru komnir til Pakistan til þess að hefja leit að líkum þeirra á fjallinu.

Útför Johns Snorra frá Vídalínskirkju
Útför Johns Snorra Sigurjónssonar fjallgöngumanns verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan 13 í dag.