
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Þurfa ekki að vera heima með barni þar til það er útskrifað úr einangrun
Þórólfur Guðnason sóttvarnlæknir hefur uppfært leiðbeiningar um útskrift úr einangrun þar sem fleiri en einn eru saman í einangrun á sama stað.

Hagnaður Rekstrarvara nær fimmfaldaðist í heimsfaraldri
Heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á hag Rekstrarvara ehf. á seinasta ári en fyrirtækið er flytur meðal annars inn hreinlætisvörur og selur áfram til fyrirtækja og einstaklinga.

Víkingar streyma í hraðprófin
Segja má að Fossvogurinn sé á yfirsnúningi fyrir morgundeginum og það tengist ekki á nokkurn hátt Alþingiskosningum. Karlalið Víkings á risastóran möguleika á að tryggja sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í þrjátíu ár með sigri á Leikni á heimavelli sínum í Víkinni klukkan 14.

Norðmenn aflétta nær öllum takmörkunum á morgun
Nær öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar verður aflétt í Noregi á morgun klukkan 16 að staðartíma.

Aldrei fleiri kosið utankjörfundar í óvenjulegum kosningum
Aldrei hafa fleiri kosið utankjörfundar í alþingiskosningum en að þessu sinni. Í morgun höfðu 42.635 greitt atkvæði utankjörfundar á landsvísu, þar af tæplega 30 þúsund í Reykjavík. Yfirkjörstjórnir leggja nú lokahönd á undirbúning fyrir kjördag á morgun en kosningarnar í ár eru um margt óvenjulegar.

Víkingar munu skanna hraðprófskóðann við innganginn á morgun
Það er búist við troðfullri Vík á morgun þegar Víkingar geta tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn í þrjátíu ár.

36 greindust innanlands með Covid-19
Í gær greindust 36 einstaklingar innanlands með Covid-19 og voru 28 í sóttkví við greiningu. Tuttugu voru óbólusettir. 348 einstaklingar eru í einangrun hér á landi vegna sjúkdómsins og 1.164 í sóttkví.

Bandarísku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum verða að láta bólusetja sig
Keppendur fyrir hönd Bandaríkjanna á Vetrarólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlaðra í Peking á næsta ári þurfa að fara í bólusetningu vegna kórónuveirunni til að mega taka þátt.

Sýndi mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns
Karlmaður sem rauf einangrun vegna Covid-19 sýndi starfsmönnum farsóttarhúss mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns þar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögregla er með fjölmörg mál tengd manninum til meðferðar.

„Við héldum að við myndum sleppa“
Skólahald í leik- og grunnskóla á Reyðarfirði hófst aftur í morgun eftir að skólunum var lokað í byrjun vikunnar vegna hópsmits kórónuveirunnar. Leikskólastjóri kveðst bjartsýnn en þó megi lítið út af bregða til að allt fari úr skorðum á ný. Hópsmitið hafi komið aftan að bæjarbúum.

Bannað að selja áfengi eftir miðnætti á kosningavökum
Engar undanþágur á samkomutakmörkunum verða veittar fyrir kosningavökur stjórnmálaflokkanna. Gestir þeirra geta því ekki neytt áfengis eftir miðnætti nema þeir mæti með það sjálfir eða fái það gefins frá flokkunum.

Bólusetning við inflúensu hefst 15. október
Von er á 95 þúsund skömmtum af bóluefni við inflúensu til landsins í ár.

36 greindust með Covid-19 innanlands í gær
36 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 346 eru nú í einangrun og 1.170 í sóttkví.

„Þarna fékk ég mjög bólgið nef, glóðurauga á öðru og það var blóð út um allt“
Þau Rakel og Rannver eru „Covid-par“ að eigin sögn. Þökk sé heimsfaraldrinum höfðu þau nægan tíma til þess að kynnast. Vinnustöðum þeirra var lokað og gátu þau því eytt öllum stundum saman á sínu bleika skýi. Bleika skýið var þó ekki svo bleikt lengur þegar óhapp í svefnherberginu varð til þess að Rakel endaði með glóðurauga og blóðnasir.

Fimm greindust smitaðir og skólastarf hefst aftur
Fimm greindust smitaðir af Covid-19 á Reyðarfirði í gær og allir voru í sóttkví. Rúmlega tvö hundruð sýni voru tekin og þar að auki rúmlega níutíu hraðpróf sem smitgátar sem reyndust öll neikvæð.

Íslandsbanki segir kórónukreppunni lokið
Kórónuveirukreppunni er lokið að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Þrátt fyrir að skellurinn hafi verið harðari hér en víða annars staðar sé viðsnúningurinn hraðari.

Að minnsta kosti fjórir smitaðir í Seljaskóla og 70 sendir í sóttkví
Fleiri en fjórir hafa greinst með Covid-19 í Seljaskóla og allur 6. bekkur hefur verið í sóttkví frá því á föstudag. Bára Birgisdóttir skólastjóri segist hafa staðfestar fregnir um fjögur smit frá smitrakningarteymi almannavarna en hún hafi heyrt af fleiri smitum.

Hagkerfið að snúa við blaðinu: Spá frekari hækkunum á húsnæði og óvissu með fjölda ferðamanna
Greining Íslandsbanka spáir því að 4,2% hagvöxtur mælist á þessu ári og 3,6% á því næsta. Talið er að um 600 þúsund ferðamenn komi til landsins í ár og verði um þriðjungur af fjöldanum árið 2019.

35 greindust með Covid-19 innanlands í gær
Þrjátíu og fimm greindust með Covid-19 innanlands í gær. 335 eru nú í einangrun og 1.353 í sóttkví.

Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali.

Þrír til viðbótar greindust á Reyðarfirði í gær
Þrír greindust smitaðir af kórónuveirunni á Reyðarfirði í gær og voru þeir allir í sóttkví. Um tuttugu hafa greinst með kórónuveiruna í bænum síðustu daga.

Víkingar nýta hraðpróf og fjölga áhorfendum
Víkingar munu geta tekið á móti 1.500 fullorðnum áhorfendum auk barna á laugardaginn, þegar þeir gætu mögulega orðið Íslandsmeistarar í fótbolta karla í fyrsta sinn í þrjátíu ár.

Skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin um að bera grímu
Tvítugur starfsmaður bensínstöðvar í þýska bænum Idar-Oberstein var skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin bensínstöðvarinnar um að bera grímu þar inni síðasta laugardagskvöld. Morðinginn hefur verið handtekinn og segist við lögreglu hafa verið ringlaður af álagi vegna takmarkana sökum heimsfaraldursins.

Til stendur að veita Þjóðhátíð í Eyjum ríkisstyrk vegna messufalls
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að til standi að veita Þjóðhátíðar í Eyjum ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV en hátíðinni hefur verið frestað nú í tvö ár.

Gefum milljarða!
Við Íslendingar erum heppin þjóð, við unnum í lotteríi lífsins að því leyti að hér eru miklar auðlindir og mörg tækifæri. Það mætti jafnvel segja að við búum í landi tækifæranna. Okkur hefur auðnast að nýta hagsæld okkar til að mennta okkur og verða þannig enn betri í að takast á við þau verkefni sem fyrir okkur liggja.

Ekki fleiri greinst innanlands síðan 3. september
Alls greindust 46 með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á einum degi síðan 3. september.

Söngskólarnir eru í vanda
Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz er nú að hefja sinn áttunda starfsvetur. Námið er geysivinsælt og færri komast að en vilja. Hér þjálfum við og menntum nemendur í tónlistarleikhúsi og öllu því sem fylgir að setja upp söngleik.

Ábyrg framtið-xY
Senn líður að kosningum til Alþingis, kosningar í kjölfar fordæmalausra tíma í sögu þjóðarinnar. Undanfarið eitt og hálft ár hefur gildismati okkar verið snúið á haus.

Villa í ferðagjafaupplýsingum Mælaborðs ferðaþjónustunnar
Meinleg villa er í upplýsingum um ferðagjöfina fyrir árið 2020 en þar segir nú að sóttar ferðagjafir séu 360.792 talsins, þegar hámarksfjöldi „útgefinna“ ferðagjafa er í kringum 280.000.

Covid fer fram úr spænsku veikinni í Bandaríkjunum
Minnst 675 þúsund Bandaríkjamenn hafa dáið vegna Covid-19 frá því faraldur kórónuveirunnar hófst. Það er sambærilegur fjöldi og talið er hafi dáið vegna spænsku veikinnar á árunum 1918 og 1919.