Bandaríkin

Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist ekki ætla að stíga til hliðar og lofaði að hann myndi sigra Donald Trump mótframbjóðanda sinn í komandi kosningum í ræðu sem hann hélt á kosningafundi í Wisconsin-ríki í dag.

Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land
Forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, hefur ákveðið að senda teymi samningamanna til að reyna að komast að samkomulagi við Hamas um vopnahlé og frelsun gíslanna sem enn eru í haldi Hamas. Daginn áður sendi Hamas Ísrael svar sitt við friðartillögu forseta Bandaríkjanna sem lögð var fram í maí.

Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“
Myndband af Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta að baktala mótframbjóðanda sinn Joe Biden fer nú um netheima. Þar talar Trump vægast sagt illa um Biden og varaforsetann Kamölu Harris og kallar forsetann „niðurbrotna skítahrúgu“. Hann fullyrðir að Biden muni hætta við framboðið.

Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum
Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti eykur forskot sitt á Joe Biden sitjandi forseta í nýrri könnun New York Times.

Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð
Í tilkynningu talsmanns Hvíta hússins er þvertekið fyrir að Joe Biden Bandaríkjaforseti sé efins um að halda framboði sínu til forseta til streitu. Tilkynningin kemur í kjölfar fréttar um að Biden hefði tjáð nánum bandamanni að hann væri að vega og meta það að hætta við.

Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar
Öldungadeildarþingmaðurinn Lloyd Doggett er fyrsti þingmaðurinn úr röðum Demókrata til þess að kalla eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar og hætti við forsetaframboð.

Friðhelgin stórauki vald forsetans
Dósent í stjórnmálafræði segir niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna, þess efnis að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti geti notið friðhelgi frá ákærum vegna embættisverka hans, munu hafa mikil áhrif á kosningabaráttuna framundan.

Ákvörðun um refsingu Trump frestað
Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að fresta ákvörðun um refsingu í máli Donald Trump fram í september á þessu ári. Trump var sakfelldur í málinu í maí á þessu ári fyrir skjalafals vegna mútugreiðslna til klámmyndaleikkonu.

Bandaríkin úr leik á Copa América og á leið í „djúpa naflaskoðun“
Heimalið Bandaríkjanna er úr leik á Ameríkumótinu, Copa América, eftir 0-1 tap gegn Úrúgvæ í nótt. Vonbrigði fyrir liðið sem ætlaði sér langt á mótinu og mun gangast undir djúpa naflaskoðun á næstunni að sögn knattspyrnusambandsins.

Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna eigi rétt á friðhelgi að hluta til, að minnsta kosti hvað við kemur það sem þeir gera í embætti forseta. Málið varðar friðhelgi Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta vegna háttsemi hans í kringum forsetakosningarnar 2020.

Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið
Fellibylurinn Beryl er nú á leið yfir Karíbahafið. Fellibylurinn hefur verið flokkaður sem afar hættulegur, í flokki fjögur af fimm flokkum. Fellibyljastofnun Bandaríkjanna spáir mannskæðum vindi og mögulega flóðbylgjum þar sem rignir mikið. Beryl er fyrsti fellibylur tímabilsins. Svo stór fellibylur hefur ekki sést svo snemma síðan árið 2005.

Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu
Ný könnun sem gerð var á meðal almennings í Bandaríkjunum bendir til þess að 72 prósent allra skráðra kjósenda telji að Joe Biden forseti hafi ekki vitsmunalega getu til þess að sinna embættinu.

Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum
Fjölmiðlar vestanhafs eru enn undirlagðir áhyggjuröddum af frammistöðu Joes Biden Bandaríkjaforseta í kappræðum hans og Donalds Trump í fyrrinótt. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 voru birt viðtöl við bandaríska kjósendur, sem líst illa á stöðuna.

Segir Biden „algjörlega vanhæfan“
Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að aldur Joe Bidens mótframbjóðanda hans, sé ekki vandamálið, heldur „algjört vanhæfi“ hans. Trump ávarpaði stuðningsmenn sína í Virgina-ríki í dag.

„Ég veit að ég er ekki ungur maður“
Joe Biden bandaríkjaforseti, hélt kraftmikla ræðu í dag, þar sem hann svaraði óbeint fyrir gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir slaka frammistöðu í kappræðum forsetaefnanna í nótt.

„Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda
Joe Biden Bandaríkjaforseti beið afhroð í forsetakappræðum hans og Donalds Trump í nótt, að mati stjórnmálaskýrenda. Þegar er farið að heyrast ákall um að Demókratar velji sér nýjan frambjóðanda, sem íslenskur sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum telur ekki útilokað.

Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum
Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi ritstjóri fylgdist með kappræðunum vestan hafs sem fram fóru í nótt og honum er brugðið – vægast sagt.

Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna
Fyrri kappræður forsetaframbjóðendanna tveggja í Bandaríkjunum, Joe Biden, núverandi forseta, og Donald Trump, fyrrverandi forseta, fóru fram í gær. Í umfjöllun erlendra miðla er í flestum þeirra talað um að kappræðurnar hafi einkennst af persónulegum árásum og að Joe Biden hafi tekist illa upp með að verjast árásum og röngum staðhæfingum Trump um hin ýmsu mál.

Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“
Spennan magnast vestanhafs fyrir forsetakappræður Joes Biden og Donalds Trump sem fara fram í nótt.

Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt
Joe Biden og Donald Trump mætast í fyrri kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar í nótt. Prófessor í stjórnmálafræði segir á brattann að sækja fyrir Biden, sem þurfi að sanna sig fyrir kjósendum í kappræðum kvöldsins.

Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum
Fyrstu kappræður forsetaefnanna tveggja, Joe Biden, Bandaríkjaforseta fyrir Demókrataflokkinn, og Donald Trump fyrrverandi forseta fyrir Repúblikanaflokkinn, í fjögur ár fara fram í kvöld á sjónvarpsstöðinni CNN. Kappræðurnar gætu skipt sköpum fyrir baráttu frambjóðendanna tveggja og ljóst er að mikið er í húfi.

Íslendingur áberandi í bandarískri raunveruleikaseríu
Ingi Hilmar Thorarensen fór eins langt út fyrir þægindarammann og hann gat hugsað sér þegar hann ákvað að kýla á það að verða hluti af risastórri bandarískri raunveruleikaseríu ásamt kærustu sinni Coronu.

Kjarnorkubréf Einsteins til sölu
Bréf sem Albert Einstein skrifaði til Franklíns D. Roosevelt Bandaríkjaforseta árið 1939 verður falt á uppboði. Í bréfinu hvatti Einstein forsetann til að hefja þróun á kjarnorkusprengjum þar sem að Þýskaland nasismans væri farið að gera það.

Söngvari Crazy Town látinn
Shifty Shellshock, söngvari hljómsveitarinnar Crazy Town, er látinn 49 ára að aldri. Söngvarinn, sem heitir Seth Binzer, lést í gær samkvæmt upplýsingum frá réttarmeinafræðingum í Los Angeles. Söngvarinn fannst látinn heima hjá sér en ekkert hefur verið gefið upp um dánarorsök.

Haldin Cher-legri aðdáun á Jökli og félögum
Íslenska hljómsveitin Kaleo hitti bandarísku stórstjörnuna Cher á dögunum á tónleikaferðalagi þeirra um Norður Ameríku. Hljómsveitin birti mynd af þeim með tónlistarkonunni á Instgram.

Gleðitíðindi að koma Assange loks úr fangelsi
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, fagnar því í dag að Julian Assange, stofnandi Wikileaks sé frjáls maður eftir áralanga frelsissviptingu. Hann segir að ekki verði hægt að greina frá dómssáttinni í smáatriðum fyrr en á morgun.

Ekki vön því að tala um eiginmann sinn sem frjálsan mann
Stella Assange, eiginkona Julians Assange, segist í skýjunum með það eiginmaður hennar hafi gert dómsátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Í samtali við breska ríkisútvarpið segist hún ekki vön því að tala um eiginmann sinn frjálsan í nútíð frekar en framtíð.

Assange farinn frá Bretlandi
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, er farinn frá Bretlandi. Hann hefur náð samkomulagi við yfirvöld í Bandaríkjunum um að gangast undir dómsátt þar sem hann mun játa sök í njósnamáli á hendur honum, en ekki sitja í fangelsi.

Assange sagður játa sök til að ganga laus
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, er sagður munu játa sök í sakamáli sem bandarísk stjórnvöld höfða á hendur honum. Það sé hluti af dómsátt sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna bjóði honum.

Táningur ákærður fyrir morð sjö ára drengs
Sextán ára drengur var ákærður fyrir morð í Chicago í Bandaríkjunum í gær. Hann er grunaður um að hafa orðið sjö ára dreng að bana með byssuskoti.