Sport

Ásgeir Örn um landsliðið: „Þeir hafa ekkert getað ennþá“
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Jónsson segja að tími sé til kominn að kjarninn sem skipar íslenska karlalandsliðið í handbolta nái árangri á stórmóti.

Ánægja með Dag og hetjan hyllt
Króatar, undir stjórn Dags Sigurðssonar, hófu HM í handbolta af krafti í Zagreb í gærkvöld og völtuðu yfir Bareinana hans Arons Kristjánssonar. Fyrrverandi aðstoðarþjálfari Króatíu hrósar Degi og fyrirliðanum Domagoj Duvnjak, sem var hylltur sérstaklega af áhorfendum en hann er á sínu síðasta stórmóti.

Svona var HM-Pallborðið
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Einar Jónsson voru gestir Stefáns Árna Pálssonar í sérstakri HM-útgáfu af Pallborðinu. Íslenska karlalandsliðið mætir Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik sínum á HM í kvöld.

„Þeir eru mjög óagaðir“
„Það er mikil tilhlökkun að spila sinn fyrsta leik á stórmóti. Þetta hefur verið draumur síðan maður var lítill strákur þannig að þetta verður mikil skemmtun, vonandi,“ segir Þorsteinn Leó Gunnarsson sem þreytir frumraun sína á HM með íslenska karlalandsliðinu í handbolta í Zagreb.

„Hluti af mér sem persónu að hafa smá skap“
Arnar Gunnlaugsson, nýr landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segist ekki geta lofað því að hann hemji skap sitt betur í nýja starfinu en sem þjálfari Víkings, en hann missti af fimm leikjum liðsins í fyrra vegna leikbanna. Hann ætli þó að reyna og segir VAR-umhverfið í alþjóðlegum fótbolta henta sér betur.

Svona var fyrsti blaðamannafundur Arnars
Vísir var með beina útsendingu og beina textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem Arnar Gunnlaugsson var kynntur sem nýr þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.

Arnar rak Sölva í beinni: „Vil ekki sjá hann hérna“
Nýr landsliðsþjálfari Íslands, Arnar Gunnlaugsson, mun ekki halda Sölva Geir Ottesen í þjálfarateymi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann raunar rak Sölva úr teyminu í beinni útsendingu.

Ísland sennilega ekki úr milliriðli en 14,2 prósent líkur á undanúrslitum
Háskólinn í Reykjavík hitaði upp fyrir heimsmeistaramótið í handbolta í HR stofunni, í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið leikur sinn fyrsta leik á mótinu í dag. Gestir HR stofunnar voru Patrekur Jóhannesson og Arnar Pétursson og þá kynnti Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, spálíkan sem hann hefur gert fyrir mótið.

„Vil að menn spili eins og hver leikur sé sá síðasti á ferlinum“
„Tilfinningin er góð rétt fyrir mót,“ segir landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson við Vísi þegar rúmur sólarhringur var í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta.

Gætið ykkar: Pina en væntanlega engin kvöl
Fyrstu mótherjar Íslands á HM í handbolta hafa litla reynslu af stórmótum og ættu ekki að reynast mikil hindrun. Í liði Grænhöfðaeyja finnast þó flottir leikmenn og einn þeirra skoraði ellefu mörk gegn Íslandi fyrir tveimur árum.

Aron ekki skráður inn á HM
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta hefur valið 17 manna hóp fyrir komandi Heimsmeistaramót. Ísland leikur fyrsta leik sinn á mótinu í kvöld gegn Grænhöfðaeyjum. Aron Pálmarsson er ekki skráður inn í mótið en hægt er að bæta honum við leikmannahópinn seinna meir.

Hefði viljað fá miklu hærri upphæð fyrir Arnar frá KSÍ
Forráðamenn Víkings Reykjavíkur hefðu viljað fá miklu hærri upphæð fyrir fyrrverandi þjálfara sinn, Arnar Gunnlaugsson, frá KSÍ. Arnar var kynntur sem nýr landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í gær. Víkingar vildu ekki standa í vegi Arnars að draumastarfinu og telja að endingu að niðurstaðan viðræðanna sé eitthvað sem að allir geti verið sáttir við.

HM í dag: Allslaus leikmaður Kúbu með vindla til sölu
Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu hefja leik á HM í Zagreb í dag. Fulltrúar Vísis eru mættir á staðinn og hafa áhugaverða ferðasögu að segja.

Tekur á líkama og sál að gera þetta
Íslenski CrossFit kappinn Björgvin Karl Guðmundsson samdi á dögunum við nýja atvinnumannadeild í CrossFit, World Fitness Project, líkt og fleiri af bestu CrossFit keppendum heims en það er fyrrverandi atvinnumaðurinn og keppinautur Björgvins, Will Moorad sem stendur að baki deildinni sem er að brjóta blað í sögu íþróttarinnar.

HM-barinn í Zagreb klár en Sérsveitin sparar kraftana
Ljóst er að fjölmargir stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta hafa sett stefnuna til Zagreb í Króatíu, vegna HM, en þó er ekki búist við að margir verði á fyrsta leiknum, við Grænhöfðaeyjar í kvöld.

„Var að vonast til að spila með Íslandi en ekki vera hinum megin“
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha verður í leikmannahópi Grænhöfðaeyja í kvöld er liðið spilar við Ísland í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta.

Spáir Íslandi sæti í undanúrslitum
Kristján Andrésson, fyrrum landsliðsmaður Íslands og landsliðsþjálfari Svíþjóðar frá 2016 til 2020, telur að strákarnir okkar fari í undanúrslit á HM í handbolta. Ísland hefur leik gegn Grænhöfðaeyjum í Zagreb í dag.

Varar Luke Littler við Man. United heilkenninu
Phil Taylor átti stórbrotinn feril í pílukastinu á sínum tíma og hann á metið yfir flesta heimsmeistaratitla frá upphafi. Hinn sautján ára gamli Luke Littler er að byrja mjög snemma að vinna heimsmeistaratitla og gæti mögulega jafnað metið í framtíðinni.

„Líður eins og ég sé tvítugur“
Markvörðurinn síungi Björgvin Páll Gústavsson er sem fyrr í leikmannahópi íslenska landsliðsins en þar hefur hann verið síðan árið 2008.

Björgvin um harmleikinn: „Hefði alveg getað verið ég“
„Þetta hefði alveg geta verið ég,“ segir Björgvin Karl Guðmundsson atvinnumaður í Crossfit um andlát keppinautar síns og kollega, Lazar Dukic, á heimsleikum CrossFit í fyrra. Hann tekur undir gagnrýni sem sett hefur verið fram á skipuleggjendur heimsleikanna og segir það miður að svona sorglegur atburður hafi þurft að eiga sér stað svo hlustað yrði á íþróttafólkið og áhyggjur þeirra.

„Fíaskó“ og Norðmenn í lítt eftirsóttan hóp með strákunum okkar
Norðmenn töpuðu óvænt fyrsta leik á HM karla í handbolta fyrir liði Brasilíu í Bærum í útjaðri Oslóar í gærkvöld. Það er ekki á hverjum degi sem Evrópuþjóðir tapa fyrir liðum utan álfunnar á heimavelli.

Flytja heimsleikana í CrossFit til New York fylkis
Heimsleikarnir í CrossFit yfirgefa hitann í Texas fylki og verða haldnir mun norðar á þessu ári.

Dagskráin: Fyrsti El Clasico í nýju Ljónagryfjunni í Njarðvík
Það er fullt af beinum útsendingum á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Gaf flotta jakkann sinn í beinni
Greg Anthony er fyrrum NBA leikmaður sem starfar nú sem sjónvarpsmaður hjá TNT sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum. Hann var að lýsa leik í NBA á dögunum þegar hann ákvað að gefa jakkann sem hann var í.

Bað um nýtt herbergi í Zagreb
Elliði Snær Viðarsson er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót karla í handbolta. Hann tók út rauðu spjöldin fyrir mót og sefur eins og ungabarn á hótelinu í Zagreb.

Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn
Phil Foden, leikmaður Manchester City, hefur gefið upp alla von um að félagið vinni fimmta Englandsmeistaratitilinn í röð.

Fimm marka veislur hjá bæði Barcelona og Bayern
Barcelona og Bayern München unnu bæði stóra sigra í leikjum sínum í kvöld, Barca í spænska bikarnum en Bæjarar í þýsku deildinni.

Uppgjörið: Haukar - Valur 28-23 | Sigurganga Vals á enda
Haukar unnu fimm marka sigur gegn Val 28-23. Haukar náðu forystunni snemma og voru í bílstjórasætinu allan leikinn. Seinni hálfleikur heimakvenna var frábær sem skilaði sigri.

Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London
Arsenal minnkaði forskot Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fjögur stig með 2-1 sigri á nágrönnum sínum í Tottenham í kvöld.

Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik
Newcastle, Aston Villa og Crystal Palace fögnuðu öll sigri í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.