Skoðun

Tryggjum Svandísi á þing

Hópur stuðningsfólks Svandísar Svavarsdóttur skrifar

Í kosningabaráttunni sem er að renna sitt skeið hefur stundum heyrst að kjósendur vilji helst kjósa fólk en ekki flokka, enda sé gott fólk í mörgum flokkum. Við sem hér skrifum heyrum þetta ekki hvað síst nefnt í sömu andrá og nafn Svandísar Svavarsdóttur, formanns VG og oddvita í Reykjavík suður. Þau sem á eftir henni koma á lista taka það ekki persónulega, enda fer ekkert milli mála að hún er einstök stærð í íslenskri pólitík.

Við vitum öll hvað býr í Svandísi. Hún hefur árum saman sýnt okkur það.

  • Fyrst sem borgarfulltrúi, þegar hún setti fótinn niður í REI-málinu svokallaða þegar samkrull stjórnmála og viðskiptalífs fór úr böndunum á kostnað almannahagsmuna. Síðar á Alþingi, þar sem hún hefur oft lagt allt í sölurnar, þar með talið sjálfa sig, til að standa vörð um hagsmuni almennings og náttúru.
  • Hún kaus ætíð sem umhverfisráðherra að láta náttúruna njóta vafans frekar en skammsýna hagsmuni atvinnu- og viðskiptalífs.
  • Hún hafði framsýni og hugrekki til að virkja samstöðu þeirra á Alþingi sem vilja að konur ráði yfir eigin líkama, og undir hennar forystu kláruðu þau það sem Rauðsokkurnar hófu og breyttu lögum um þungunarrof.
  • Sem heilbrigðisráðherra stóð hún alltaf með fagfólkinu sem stýrði okkur í gegnum heimsfaraldur þrátt fyrir pólitískan þrýsting úr öllum áttum.
  • Sem matvælaráðherra tók hún hugaða ákvörðun um að standa með dýravelferð og náttúruvernd og gegn þeirri ómannúðlegu tímaskekkju sem hvalveiðar eru. Þetta eru bara nokkur dæmi um þann kjark sem í Svandísi býr og hvað hún stendur fyrir.

Svandís stendur gegn sérhagsmunum og fyrir almannahagsmuni. Hún stendur með náttúrunni gegn yfirgangi og tilgangslausri gróðafíkn. Hún stendur gegn öfgahægri sem vinnur gegn kvenfrelsi – og þeir þola hana ekki fyrir það. Hún er þrándur í þeirra götu. Ef það er engin Svandís á Alþingi er leiðin greiðari fyrir slík öfl að völdunum.

Tíminn er núna – stöndum með Svandísi fyrir umhverfið og réttlátara samfélagi.

Við kjósum Svandísi Svavarsdóttur og Vinstri græn laugardaginn 30. nóvember.

  • Aðalbjörg Árnadóttir, leikkona og leikstjóri
  • Andrea Jóhannsdóttir, bókasafnsfræðingur
  • Anna Sigga Helgadóttir, söngkona
  • Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, píanisti
  • Arnaldur Grétarsson, sviðsstjóri
  • Arnbjörg Soffía Árnadóttir, stærðfræðingur
  • Auður Alfífa Ketilsdóttir, leiðbeinandi og leiðsögumaður
  • Árni Hjartarson, jarðfræðingur
  • Ásdís Ingólfsdóttir, rithöfundur og kennari
  • Áslaug Jónsdóttir, bókverkakona
  • Bára Gísladóttir, tónskáld og kontrabassaleikari
  • Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor
  • Bergþóra Benediktsdóttir, ráðgjafi
  • Bergþóra Hrund Ólafsdóttir, mannauðsstjóri
  • Bjarni Þorsteinsson, ritstjóri
  • Björn Valur Gíslason, skipstjóri
  • Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
  • Daníel E. Arnarsson, háskólanemi
  • Egill Ástráðsson, viðskiptafræðingur
  • Egill Gautason, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Einar Ólafsson, ljóðskáld og frv. bókavörður
  • Erna Guðrún Árnadóttir, sérfræðingur
  • Eva Rún Snorradóttir, rithöfundur og listakona
  • Eyrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Finnbogi Pétursson, myndlistarmaður
  • Fríða Rós Valdimarsdóttir, sérfræðingur
  • Gerður Kristný, skáld
  • Gísli Garðarsson, skrifstofumaður
  • Grace Achieng, framkvæmdastjóri
  • Gró Einarsdóttir, sérfræðingur við Rannsóknarmiðstöð háskólans á Akureyri
  • Guðmundur Kristbergsson, ferðaþjónustubóndi
  • Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ
  • Guðrún St. Guðbrandsdóttir, kennari og forseti Hinsegin Vesturlands
  • Gyða Valtýsdóttir, tónlistarkona
  • Hadda Hreiðarsdóttir, markaðsstjóri
  • Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, framkvæmdastýra
  • Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi og háskólanemi
  • Helga Dögg Ólafsdóttir, grafískur hönnuður
  • Hermann B. Valsson lýðheilsufræðingur og kennari
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Pure Natura
  • Hjördís Hildigunnur Friðjónsdóttir, kennari
  • Hrund Ólafsdóttir, bókmenntafræðingur og leikskáld
  • Hugrún R. Hólmgeirsdóttir, framhaldsskólakennari
  • Ingi Ragnar Ingason, kvikmyndagerðarmaður
  • Ingibjörg Daníelsdóttir, bóndi og kennari
  • Ingibjörg Hjartardóttir, rithöfundur
  • Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, listakona
  • Ísfold Rán Grétarsdóttir, háskólanemi
  • Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur
  • Jóna Hlíf Halldórsdóttir, myndlistakona
  • Jónína Riedel, náms- og starfsráðgjafi
  • Jovana Pavlović, mannfræðingur
  • Júlía Hreinsdóttir, fagstjóri táknmálskennslu
  • Katrín Guðbjartsdóttir, sviðslistakona
  • Kristín I. Pálsdóttir, talskona
  • Kristína Ragnarsdóttir, kennari
  • Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri
  • Kristinn Schram, dósent
  • Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, eftirlaunaþegi
  • Kristján Ketill Stefánsson, lektor
  • Lára Jóna Þorsteinsdóttir, uppeldis- og kennslufræðingur
  • Laufey Auður Kristjánsdóttir, heldri borgari
  • Margrét Auður Jóhannesdóttir, táknmálstúlkur
  • Margrét Baldursdóttir, táknmálstúlkur
  • Oddur Sigurjónsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi
  • Ólafur Halldórsson, háskólanemi
  • Ólafur S. Andrésson frv. prófessor
  • Pétur Heimisson, læknir
  • Rakel McMahon, myndlistarkona og kennari
  • Rannveig Sverrisdóttir, lektor
  • Rebekka Hlín Rúnarsdóttir, jarðfræðingur
  • Róbert Marshall, leiðsögumaður
  • Rún Halldórsdóttir, svæfinga- og gjörgæslulæknir
  • Rúnar Gíslason, lögreglufulltrúi
  • Sara Guðmundsdóttir, bókari
  • Sigfús Ólafsson, viðskiptafræðingur
  • Sigríður Eir Zophoníasardóttir, kennari og listakona
  • Sigríður María Atladóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Sigrún Alba Sigurðardóttir, rithöfundur og sýningarstjóri
  • Sigrún Birna Steinarsdóttir, landfræðingur
  • Sigrún Helgadóttir, líffræðingur og rithöfundur
  • Sigrún Hjartardóttir, ráðgjafi
  • Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri rannsókna
  • Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ónæmisfræðingur
  • Sigurjón Helgason, áfengis- og vímuefnaráðgjafi á eftirlaunum
  • Sigurlaug Brynjólfsdóttir, leikskólaliði
  • Sigursteinn Másson, fjölmiðlamaður
  • Skúli Arnlaugsson, hugbúnaðarsérfræðingur
  • Stefán Pálsson, sagnfræðingur
  • Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur
  • Steinunn Rögnvaldsdóttir, félags- og kynjafræðingur
  • Steinþór Rafn Matthíasson, hönnuður
  • Steinþóra Jónsdóttir, sjúkraþjálfari og verkefnastjóri
  • Sunna Áskelsdóttir, votlendissérfræðingur
  • Svanfríður Halldórsdóttir, húsfreyja
  • Thelma Harðardóttir, verkefnastjóri
  • Valgerður H. Bjarnadóttir, félagsráðgjafi
  • Vilhelmína Haraldsdóttir, læknir
  • Þór Steinarsson, veitingamaður
  • Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, kennari
  • Þóra Magnea Magnúsdóttir sérkennslustjóri
  • Þórir Viðarsson, framkvæmdastjóri
  • Þorleifur Gaukur Davíðsson, tónlistarmaður
  • Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri
  • Þröstur Brynjarsson, kennari



Skoðun

Sjá meira


×