Um lifandi tónlist í leikhúsi Þórdís Gerður Jónsdóttir skrifar 9. desember 2025 11:30 Eitt af því skemmtilegsta og mest gefandi sem ég hef fengið að starfa við er að vera hljóðfæraleikari í leikhúsum borgarinnar. Ég hef komið fram á sýningum á vegum bæði Borgaraleikhússins og Þjóðleikhússins, auk þess að hafa tekið þátt í sjálfstæðum uppfærslum. Reynsla mín af því að starfa í leikhúsi hefur verið yfirgnæfandi jákvæð. Alls staðar hef ég fengið hlýjar móttökur og fengið að heyra hversu miklu máli það skiptir fyrir leikhúsin að hafa lifandi tónlist í sýningum. Þeir hljóðfæraleikarar sem ég starfa með hafa langflestir haft sömu sögu að segja og það að fá stöðu í hljómsveit í leiksýningu er eftirsótt vinna fyrir marga hljóðfæraleikara, enda er aðeins ein hljómsveit starfandi á Íslandi sem býður upp á fastar stöður (þ.e. Sinfóníuhljómsveit Íslands) og sú hljómsveit spilar nær eingöngu sígilda tónlist. Út af þessu hefur mér fundist dapurlegt að fylgjast með því hvernig lifandi tónlist í leikhúsum er orðin sífellt sjaldheyrðari. Staða lifandi tónlistar í leikhúsum Undanfarin ár hefur borið ansi mikið á því að tónlist í leikverkum, þar með talið í söngleikjum, sé tekin upp og leikin á stafrænu formi á sýningum. Eins virðist það að hafa færst í aukanna að tónlistin sé að hluta til tekin upp og spiluð yfir hljóðfæraleik fámennra flytjenda, líklega með það að markmiði að fá stærri og fjölbreyttari hljóm úr fámennari hljómsveitum. Taka skal fram að hér er ekki verið að fjalla um hljóðmyndir þar sem hljóðrituð tónlist, s.s. raftónlist, er hluti af hugmynd og listrænni sýn tónlistarstjórans, en slík tónlist getur að sjálfsögðu verið jafn áhrifamikil og innihaldsrík og lifandi tónlist. Það sem er bent hér á er að þeir sem sjá um tónlistarstjórn virðast í auknum mæli vera undir þeirri pressu að sjá sýningum fyrir margbrotinni hljóðmynd með afar litlum mannafla. Af þeim tónlistarstjórum sem ég hef rætt við er ástæðan að baki þessa nær eingöngu skortur á fjármunum sem varið er til lifandi hljóðfæraleiks í sviðslistum, frekar en listræn sýn tónlistarastjóra eða skortur á hljóðfæraleikurum sem hafa áhuga á eða hæfni til að spila í leiksýningum. Sérstaklega hefur mér fundist leitt að sjá að barnasýningar á þessu leikári, bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu, hafa verið án lifandi hljóðfæraleiks. Hvers vegna lifandi tónlist? En það að hafa lifandi tónlist í leikhúsum er, að mati höfundar, ekki bara eitthvað sem skiptir hljóðfæraleikara máli, heldur er einnig hluti af því að viðhalda lifandi leikhúsformi, þar sem sýningar fá að þróast allt sýningartímabilið, sérstalega leiksýningar með söng og dansi. Þegar stuðst er við fyrirfram hljóðritaða tónlist, hvort sem er að fullu eða að hluta til, gefst leikurum, dönsurum og öðru sviðslistafóllki lítið tækifæri til fjölbreyttrar túlkunar á mismunandi sýningum. Ekki er hægt að velja að hafa lögin hraðari eða hægari og ekki er hægt að stytta eða lengja dramatískar pásur. Oft er nær ómögulegt að aðlaga tónlist að stemningu eða dagsformi leikhópsins. Að mati höfundar gerir fyrirfram hljóðrituð tónlist í leikhúsum einnig áhorfendum erfiðara með að taka þátt í leikverkinu sjálfu, þ.e. erfiðara er að aðlaga tímasetningar að viðbrögðum áhorfenda hvert sinn. Að mínu mati er metnaðarfullt starf stóru leikhúsanna tveggja með eftirsóttari stafsvettvöngum atvinnuhljóðfæraleikara á Íslandi. Reynsla mín er að á báðum stöðum sé mikill vilji til að hafa hljóðfæraleikara starfandi við sýningar húsanna og á báðum stöðum hef ég átt einstaklega góða starfsreynslu. Að sama skapi finnst mér sem leikhúsgesti stórkostlegt að fara á sýningar með lifandi tónlist. Mig langar því að hvetja leikhússtjóra landsins, tónlistarstjóra leiksýninga og forsvarsmenn Félags íslenskra hljómlistarmanna til að standa betri vörð um lifandi tónlistarflutning í leikhúsum. Eins vil ég hvetja þessa aðila til að skoða hvort það sé ásættanlegt að krefja tónlistarstjóra um það að framkalla stórbrotin hljóm með litlum eða jafnvel engum lifandi flutningi. Á tímum gervigreindar og óvæginnar misnotkunar á höfundarétti tel ég þetta sérstaklega mikilvægt og aðkallandi. Við þurfum að spyrja okkur hvert þessi þróun mun leiða okkur ef haldið er áfram á þessari braut. Munum við sætta okkur við að leikhópar framtíðarinnar samanstandi aðeins að hluta til af mennnskum leikurum en að með sum hlutverk fari fyrirfram uppteknir leikarar á skjávarpa? Fyndist okkur í lagi að leikmynd og búningar heyrðu sögunni til og þeim bara varpað upp á skjá? Ef þetta er þróunin, til hvers þá að fara í leikhús? Og hvað með nýja Þjóðaróperu? Ættum við að sætta okkur við að láta söngvarana syngja karókí með undirleik fyrirfram hljóðritaðra sinfóníuhljómsveita? Að mínu mati verðum við að halda utan um mennskuna í listgreinum, ef mennska er á annað borð eitthvað sem okkur finnst að skipti máli. Berum virðingu fyrir mennsku listafólks og öðrum sem koma að sviðslistum en ekki síst mennsku áhorfenda, sem verða að hafa tækifæri til að bregðast við þeirri list sem þeir upplifa. Höfundur er sellóleikari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikhús Menning Tónlist Mest lesið Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun