Hlutfall kennara í leikskólum er lögbundið – ekki skoðun Anna Lydía Helgadóttir skrifar 23. febrúar 2026 09:46 Það er orðið athyglisvert hvernig umræðan um leikskóla þróast. Þegar bent er á nauðsyn þess að fjölga leikskólakennurum – og rætt um markmið og leiðir til að ná því – berst umræðan oft annað. Þá er vísað í ágæti dagforeldra, persónulegar reynslusögur, eða velt fyrir sér hvort það skipti í raun máli hvort starfsfólk sé menntað. Pólitískt kjörnir fulltrúar ættu að kynna sér betur hvað er best fyrir börn og ræða við sérfræðinga. Við erum að tala um það verðmætasta sem við eigum – börnin og framtíðina. Þau verðskulda ekki aðeins pláss. Þau verðskulda menntun. Hlustum á sérfræðingana Leikskólinn er grunnur alls náms. Þar mótast málþroski, félagsfærni, sjálfsmynd og grunnur að áframhaldandi námi. Þar liggja stærstu tækifæri samfélagsins til að jafna stöðu barna og tryggja að öll börn fái að blómstra, óháð aðstæðum. Gæði á þessu skólastigi ráðast fyrst og fremst af fagmennsku þeirra sem starfa þar. Þetta er ekki til umræðu Þetta snýst ekki um tilfinningar eða smekk. Þetta snýst um lög og um ábyrgð gagnvart börnum. Leikskólinn er samkvæmt lögum fyrsta skólastigið. Hann er menntastofnun. Lögin kveða skýrt á um að minnsta kosti tveir þriðju þeirra sem sinna uppeldi og menntun barna í leikskólum skuli vera kennarar með leyfisbréf. Það er ekki viðmið sem má túlka eftir hentugleika hverju sinni. Þegar hlutfall kennara í leikskólum nær ekki einu sinni þriðjungi er það ekki aðeins langt frá markmiðum, þá erum við að horfa á kerfislægan vanda sem krefst raunverulegra aðgerða. Af hverju ætti leikskólinn að vera undantekning? Við spyrjum ekki hvort við séum „að spá í“ menntun lækna eða hjúkrunarfræðinga. Við gerum kröfur um fagmennsku vegna þess að hún skiptir máli fyrir öryggi og gæði þjónustunnar. Af hverju ætti það að vera öðruvísi þegar kemur að yngstu börnum samfélagsins? Börn þurfa samfellu – ekki starfsmannaveltu Reynsla og rannsóknir sýna að þar sem hlutfall menntaðra kennara er hærra er stöðugleiki meiri. Þar sem stöðugleiki er meiri líður börnum betur. Há starfsmannavelta er ekki aðeins kostnaðarsöm fyrir sveitarfélög, hún er kostnaðarsöm fyrir börn. Börn þurfa öryggi, tengsl og samfellu. Kennarar sjá það sem aðrir sjá ekki Leikskólakennarar þekkja þroskamerki. Þeir geta brugðist við snemma þegar barn þarf stuðning, hvort sem það snýr að málþroska, félagslegri færni eða öðru. Þeir móta nám og leik út frá þörfum hvers og eins barns. Þetta lærist ekki á vinnustaðnum. Þetta er menntun. Og það er fjölbreytt, gefandi og skemmtilegt starf – að fylgjast með börnum dafna, læra og þroskast á hverjum einasta degi. Þessi þekking er ekki aukabúnaður. Hún er ástæðan fyrir því að leikskólinn er skóli – ekki gæsla. Góð laun og góðar starfsaðstæður – tækifærið sem bíður Einn algengasti misskilningurinn í umræðunni er að laun leikskólakennara séu of lág til að gera starfið eftirsóknarvert. Kjarasamningar undanfarinna ára hafa breytt myndinni. Staðreyndin er sú að núna í apríl verða byrjunarlaun nýútskrifaðs leikskólakennara með enga starfsreynslu 801.528 kr. Laun deildarstjóra með meistarapróf og 20 ára starfsreynslu verða 1.016.578 kr. Mikilvæg vinna er í gangi um að jafna laun kennara við önnur sérfræðistörf. Vissulega mættu launin vera hærri, þó þau séu alls ekki jafn lág og margir halda. Í virðismatsvegferð KI er markmiðið að jafna laun kennara við önnur sérfræðistörf og er það er löngu tímabær viðurkenning á gildi starfsins – og þeirri vinnu er ólokið. Það er sveitarfélaganna og kjörinna fulltrúa að tryggja að þessi vegferð skili árangri. Auk þess hefur Ísland gengið lengra en flest önnur lönd í að tryggja kennurum góðan undirbúningstíma, eitthvað sem skiptir gríðarlegu máli fyrir gæði námsins og líðan kennara í starfi. Sveitarfélög ættu að vera stolt af þessum árangri og kynna hann markvisst til að laða að fólk í nám. Ef þú hefur hugsað um að fara í leikskólakennaranám – þá er þetta tíminn. Spurningarnar sem þarf að spyrja Þegar kosningaloforð eru gefin um að taka yngri börn inn í leikskóla er eðlilegt að spyrja hvort mönnun sé tryggð, hvort fagfólk sé til staðar og hvort starfsaðstæður séu þannig að kennarar vilji vera áfram. Hvað getum við gert til að auka hlutfall kennara? Þessar spurningar eru ekki nýjar. Vandinn er þekktur. Það sem hefur skort er ekki þekking – heldur pólitískur vilji til að bregðast betur við. Án fjárfestingar í kennurum verða slík loforð að orðum einum. Ef sveitarfélag er langt frá lögbundnu hlutfalli kennara ber því skylda til að gera úrbætur. Og kjörnum fulltrúum ber skylda til að krefjast þess. Góð menntun byrjar með góðum kennurum. Höfundur er leikskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Leikskólar Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar