Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar 22. október 2026 11:32 Er ekki undarlegt að leikskólinn hafi um árabil verið skilgreindur í lögum sem fyrsta skólastigið, án þess að öllum börnum hafi jafnframt verið tryggður réttur til leikskólavistar frá tilteknum aldri? Við lítum á það sem sjálfsögð réttindi barna að fá að ganga í grunnskóla og síðar framhaldsskóla. En þegar kemur að fyrsta skólastiginu er enn gat í réttindum þeirra í lögum og ábyrgðin á að tryggja þennan rétt er óljós. Þessu er löngu tímabært að breyta. Ég ásamt sjö öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar hef lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um lögfestingu réttar barna til leikskólavistar. Markmiðið er að öllum börnum verði tryggður réttur til leikskóla þegar fæðingarorlofi lýkur, óháð búsetu eða efnahag foreldra. Þetta er að okkar mati eðlilegt og mikilvægt framfaraskref í þróun íslensks mennta- og velferðarkerfis. Ég er raunar sannfærður um að stór hluti þingheims, og samfélagsins, er sömu skoðunar. Réttindi barna – ekki biðlistar og óvissa Í dag er enginn lögbundinn réttur barna til leikskólavistar frá tilteknum aldri. Aðgangur að leikskólum er að verulegu leyti háður aðstæðum í hverju sveitarfélagi. Þess vegna getur verið verulegur munur á því hvenær börn fá leikskólapláss eftir því hvar þau búa. Umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er ábyrgðargat í íslensku velferðarkerfi. Þegar fæðingarorlofi lýkur tekur ekki sjálfkrafa við tryggður réttur til leikskólavistar. Foreldrar verða sjálfir að finna lausn, með tilheyrandi óvissu og oft verulegum fjárhagslegum afleiðingum. Þetta hefur líka mikil áhrif á jafnrétti kynjanna. Rannsóknir sýna að það eru oftar en ekki mæður sem draga úr starfshlutfalli eða fresta endurkomu á vinnumarkaðinn þegar leikskólapláss vantar. Lögfesting réttar til leikskólavistar er því einnig mikilvægt jafnréttismál. En fyrst og fremst snýst þetta um börnin sjálf. Leikskólinn er ekki fyrst og fremst þjónusta sem gerir foreldrum kleift að vinna. Hann er menntastofnun þar sem börn þroska félagsfærni, málþroska, sjálfstæði og samskiptahæfni, svo fátt eitt sé nefnt. Vandað leikskólastarf hefur sérstaklega mikið gildi fyrir börn sem þurfa aukinn stuðning eða búa við félagslega erfiðari aðstæður. Það er því mikilvægt að líta á leikskólavist sem réttindi barnsins sjálfs, en ekki aðeins þjónustu við foreldra þess eða atvinnulíf. Ísland taki næsta skref Á hinum Norðurlöndunum hefur almennt verið tryggður lögbundinn réttur barna til dagvistunar við eða skömmu eftir lok fæðingarorlofs. Þar er litið á samfellda þjónustu við börn og fjölskyldur sem sjálfsagðan hluta velferðarkerfisins. Ísland hefur byggt upp öflugt leikskólastig og mikla atvinnuþátttöku beggja foreldra, en við höfum ekki stigið þetta mikilvæga skref í réttindum barna. Í desember síðastliðnum skilaði aðgerðahópur stjórnvalda, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins mikilvægri skýrslu með tillögum um hvernig brúa mætti umönnunarbilið. Þar var lagt til að réttur barna til leikskólavistar yrði lögfestur í áföngum og að full samfella milli fæðingarorlofs og leikskóla yrði tryggð fyrir árið 2030. Þeirri áfangaskiptingu er í meginatriðum fylgt í þingsályktunartillögunni til að stuðla að sem breiðastri sátt um málið. Í skýrslunni kemur einnig fram að samfélagslegur ábati af því að tryggja börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur gæti numið um 11 milljörðum króna á ári. Það undirstrikar að hér fara saman félagslegt réttlæti, jafnrétti og mikilvægir þjóðhagslegir hagsmunir. Réttindunum þarf að fylgja raunveruleg ábyrgð Í þingsályktunartillögu okkar er lagt til að réttur barna til leikskólavistar frá 18 mánaða aldri verði tryggður eigi síðar en árið 2028 og að öll börn eigi rétt á leikskólavist að loknu fæðingarorlofi eigi síðar en árið 2030. Mikil uppbygging í leikskólamálum undanfarin ár, meðal annars í Reykjavík, gerir að verkum að þetta er fyllilega raunhæft. Jafnframt verði ríki og sveitarfélög að semja um fjármögnun, uppbyggingu og ábyrgð á framkvæmdinni. Lögfesting ein og sér byggir auðvitað ekki leikskóla eða tryggir starfsfólk. Þess vegna leggjum við líka til að samhliða frumvarpsgerðinni verði unnin tímasett áætlun um uppbyggingu, styrkingu leikskólastigsins og mönnun þess. Það þarf að tryggja að réttindin verði raunveruleg í lífi barna og foreldra, ekki aðeins falleg orð á blaði. Við höfum áður stigið stór skref í íslensku samfélagi með því að tryggja almennan rétt til menntunar og byggja upp þjónustu sem áður var háð aðstæðum fólks. Lögfesting réttar barna til leikskólavistar er rökrétt framhald þeirrar þróunar. Hún felur ekki í sér skyldu foreldra til að senda börn sín í leikskóla, heldur tryggir þeim og börnum þeirra þann rétt og það val sem í dag skortir. Það á ekki að vera háð búsetu, fjárhag eða tilviljunum hvenær barn fær tækifæri til að hefja leikskólagöngu. Við höfum fyrir löngu viðurkennt leikskólann sem fyrsta skólastigið. Nú er tímabært að taka næsta skref og tryggja öllum börnum rétt til þess í lögum. Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga Tengill á þingsályktunartillögu um lögfestingu sveitarstjórnarstigsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar