

Sjávarútvegur

Boðar áfrýjun í makrílmálinu og segir ríkið ekki hafa hafnað sátt
Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu.

Guggan lifir enn
Undanfarin ár hefur fjárfesting Reynis Traustasonar og lífsviðurværi sonar hans birt endalausar falsfréttir um Samherja og forstjóra félagsins. Nú þegar sitthvað er að koma í ljós um starfsaðferðir þar á bæ dustar Reynir rykið af lífseigasta bullinu um Gugguna á Ísafirði.

Ósáttur við að pólitíkusar þverskallist við að fara að lögum
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segist í sjálfu sér vera ánægður með nýfallinn dóm en ríkið hefur verið dæmt til að greiða Vinnslustöðinni auk Hugins bætur vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 til 2018. Það sé hins vegar ekkert gleðiefni að stjórnmálamenn hafi þverskallast við að fara að lögum.

Vinnslustöðin lagði ríkið í makrílbaráttu upp á milljarða króna
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða sjávarútvegsfyrirtækinu Vinnslustöðinni rúman milljarð króna í bætur vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 og 2018. Vinnslustöðin og Huginn stefndu ríkinu en Vinnslustöðin keypti svo Huginn árið 2021 á meðan málsókninni stóð.

Bréf til Kára
Sæll Kári Stefánsson og takk kærlega fyrir þitt hressilega innlegg í hátíðarhöld Sjómannadagsins. Þú hefur löngum haft lag á því að taka til máls með þeim hætti að fólk leggi við hlustir. Þess vegna var ádrepan þín í Grindavík ekki bara skemmtileg heldur góð brýning.

Telur tilefni til að ítreka tíu af ellefu úrbótatillögum frá 2018
Matvælaráðuneytið og eftir atvikum Fiskistofa hafa ekki brugðist með viðunandi hætti við úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2018 varðandi eftirlit stofnunarinnar með vigtun sjávarafla, brottkasti og samþjöppun aflaheimilda.

Samtalið við Seyðfirðinga sem aldrei varð
Nærsveitungi okkar kom með sporðaköstum og krafti og hreinlega sagði Seyðfirðingum að sjókvíaeldi kæmi í fjörðinn í september 2023. Honum var ekkert sérlega vel tekið, en hann kvaðst funda oftar og upplýsa okkur og taka samtalið við samfélagið og vinna með því.

Kári hvetur til byltingar sjómanna
Sjómenn verða að krefjast aðgangs að gögnum um íslenskan sjávarútveg og taka þátt í endurreisn hans. Þetta sagði Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar í ræðu sinni á sjómannadaginn í dag. Dapurlegt sé að sjómannastéttin hafi glatað þeim stað sem hún ætti að hafa í hjarta þjóðarinnar.

Fyrsti áttæringurinn frá bátasmiðum í heila öld
Bátasmiðir voru í dag að leggja lokahönd á fyrsta áttæringinn sem smíðaður hefur verið á Íslandi í meira en öld. Máttarviðir bátsins eru afrakstur íslenskrar skógræktar.

Ætla að takmarka aðgang Rússa að færeyskum höfnum
Færeyska heimastjórnin ætlar að takmarka aðgang rússneskra skipa að höfnum á eyjunum og banna viðgerðir á þeim nema í neyðartilfellum. Þá ætlar hún að ákveða það fyrir haustið hvort að umdeildur fiskveiðisamningur við Rússa verði framlengdur.

Tæpur milljarður í áburðarverksmiðju í Ölfusi
Umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins, LIFE, hefur veitt íslenska samstarfsverkefninu Terraforming LIFE styrk upp á tæpan milljarð króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum verkefnisins.

Strandveiðar án kvóta
Eins og kunnugt er gaf matvælaráðherra út þá yfirlýsingu í upphafi ferils síns sem ráðherra sjávarútvegsins, að hún vildi með skipun stærstu nefndar sögunnar undir merki “Auðlindin okkar” stuðla að meiri samfélagslegri sátt um alla umgjörð sjávarútvegsins.

Jöfnum stöðu byggðanna með strandveiðum
Ein af farsælustu ákvörðunum síðari ára til að efla sjávarbyggðir landsins var tilkoma strandveiða. Það voru mikilvæg og farsæl tímamót 25. júní 2009 þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra VG, Jón Bjarnason, undirritaði fyrstu reglugerðina um strandveiðar.

Rökin fyrir frjálsum handfæraveiðum
Strandveiðitímabilið hófst 2. maí sl. í fimmtánda sinn frá því strandveiðum var komið á í núverandi mynd. Einungis 10.000 tonn af þorski eru í strandveiðipottinum á veiðitímabilinu sem stendur í 48 daga frá maí til ágúst. Líklegt er að veiðum verði hætt fyrr og veiðidagar verði færri 48 vegna skorts á aflaheimildum. hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur tæpum fimm prósentum.

Lækka laxeldisskatt í von um að ná þingmeirihluta
Fyrirhugaður auðlindaskattur á laxeldi í Noregi lækkar úr 35 prósentum niður í 25 prósent, samkvæmt samkomulagi sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa náð við tvo smáflokka í því skyni að tryggja meirihlutastuðning við málið í Stórþinginu. Upphafleg tillaga gerði ráð fyrir að skatturinn yrði 40 prósent af hreinum hagnaði.

Fjallað um glataðar skatttekjur í nýrri bók um Samherjamálið
Samkvæmt nýrri bók um Samherjamálið glataði namibíska ríkið 90 milljón namibíudollurum á fimm ára tímabili vegna Samherjar tengdra fyrirtækja. Þetta gera um 630 milljónir króna.

Landsliðið í nýtingu
Íslendingar hafa forystu í nýtingu hvítfisks. Þar munar miklu á milli okkar og annarra landa; Ísland nýtir bróðurpart hvitfisks eða rösklega 90% á meðan margar þjóðir nýta 50-60%. Þannig henda aðrar þjóðir milljónum tonna af verðmætum próteinum og vítamínum í stað þess að nýta þau.

Myndskýrsla um hinar fullkomlega óskiljanlegu hvalveiðar á Íslandi
Rán Flygenring fjallar um hvalveiðar Íslendinga.

Sóttu fótbrotinn sjómann út af Snæfellsnesi
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í morgun beiðni um aðstoð á sjó. Þá hafði maður í áhöfn togskips út af Snæfellsnesi fótbrotnað þegar skipið fékk á sig brotsjó.

Viðurkennir að hafa farið rangt að við veiðar
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, viðurkennir að betur hefði mátt standa að hvalveiðum þegar hvalur var eltur í tvær klukkustundir í myrkri og sex sprengiskutlum skotið á hann.

Talið víst að Jens Garðar verði næsti framkvæmdastjóri SA
Samkvæmt heimildum Vísis er talið næsta víst að Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða hf. og Laxa fiskeldis hf. verði fyrir valinu sem næsti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mikið er undir.

Fölsk afsökunarbeiðni Samherja reyndist lokaverkefni í LHÍ
Fölsk afsökunarbeiðni í nafni Samherja, vefsíða og yfirlýsing þar um var lokaverkefni listamannsins Odds Eysteins Friðrikssonar, sem kallar sig Odee, í Listaháskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá listamanninum.

Orkuskortur kom þungt niður á kolefnisbókhaldi Síldarvinnslunnar
Ef fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar á Neskaupstað hefðu haft ótakmarkað aðgengi að rafmagni hefði verið hægt að koma í veg fyrir losun 14 þúsund tonna af kolefnisígildum á síðasta ári. Forstjóri Síldarvinnslunnar segir vonbrigði að orkubúskapur landsins sé ekki í betri stöðu en raun ber vitni.

Methagnaður hjá Loðnuvinnslunni
Loðnuvinnslan hefur aldrei skilað meiri hagnaði en í fyrra en hann var þrír og hálfur milljarður króna. Það er langbesta rekstrarár fyrirtækisins en ári áður var hagnaðurinn 1,2 milljarðar króna.

Beinagrindur frá Namibíu í skattaskjólsskápum
Einhver auðugustu fiskimið heims eru innan efnahagslögsögu Íslands. Fiskimiðin eru sameign þjóðarinnar.

Gervigreind greinir stærð og tegund fiska sem koma í troll
Hátæknifyrirtækið Stjörnu-Oddi hefur í samstarfi við Hafrannsóknastofnun þróað tæki sem nýtir gervigreind til að sjá hvaða fisktegundir koma í troll fiskiskipa sem og stærð fiskanna. Tæknin er sögð stórt stökk í hafrannsóknum en einnig geta aukið hagkvæmni veiða og bætt umgengni skipstjórnarmanna við fiskistofna.

Segir mjög góðan rökstuðning þurfa ef halda á áfram hvalveiðum
Matvælaráðherra segir mjög góðan rökstuðning þurfa til þess að hvalveiðar verði stundaðar áfram en reglugerð um veiðarnar rennur út eftir yfirstandandi veiðitímabil. Sönnunarbyrðin hvíli á þeim sem vilja halda veiðunum til streitu.

„Enginn að leika sér að veiða þessi dýr svo að þau þjáist“
Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir það gríðarlegt hagsmunamál að Hvalur hf. fái að halda áfram hvalveiðum sínum næstu árin. Að meðaltali hafi 90 starfsmenn Hvals verið félagsmenn í verkalýðsfélaginu á síðustu vertíð. Hann spyr sig hvaða veiðar skuli næst banna á grundvelli dýraverndunarsjónarmiða.

Dýralæknafélag Íslands segir ráðherra bera að stöðva hvalveiðar tafarlaust
Dýralæknafélag Íslands segir skýrslu Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar sýna með óyggjandi hætti að sú aflífunaraðferð sem notuð sé og samykkt brjóti gegn meginmarkmiðum laga um velferð dýra.

Reykt í bíl með börnin aftur í og hvalkjöt í skottinu
Skýrsla Matvælastofnunar um hvalveiðar við Íslandsstrendur rennir stoðum undir það sem við flest þegar vissum að hvaladráp á ekki rétt á sér í nútímanum. Raunar eru hvalveiðar ámóta framsýnar og að ætla sér að reisa kolanámu til orkuvinnslu árið 2023.