Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Óánægja og tafir í Iowa
Miklar tafir hafa orðið á því að hægt sé að greina frá úrslitum í forvali demókrata í Iowa sem fram fór í gær.

Kosningar í Bandaríkjunum: Biden og Bernie þykja sigurstranglegastir
Demókratar í Iowa í Bandaríkjunum kjósa um forsetaframbjóðanda flokksins í dag. Nokkuð mjótt er á munum og fyrirkomulag kosninganna óútreiknanlegt. Útlit er því fyrir spennandi kosningar.

Forval demókrata hefst í Iowa
Bernie Sanders og Joe Biden mælast með mestan stuðning frambjóðenda í Iowa þar sem val demókrata á forsetaframbjóðanda sínum hefst í dag.

Lýsti yfir framboði árið 2017 en dregur það nú til baka
Demókratinn John Delaney, fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður Maryland, hefur ákveðið að draga framboð sitt til forseta Bandaríkjanna til baka.

Buttigieg: Sigur Rós ætti síðasta lagið
Bandaríski forsetaframbjóðandinn virðist vera mikill aðdáandi íslensku sveitarinnar Sigur Rósar ef marka má svar hans við spurningu kynnis á kosningafundi hans í Suður-Karólínu fyrr í vikunni.

Lögmenn Trump saka Demókrata um mestu afskipti af kosningum í sögunni
Lögmenn Bandaríkjaforseta segja að tilraunir Demókrata að reyna að bola forsetanum úr embætti myndu setja "mjög, mjög hættulegt“ fordæmi á kosningaári.

Kalla eftir hugrekki meðal öldungadeildarþingmanna
Demókratar vörðu fyrstu lotunni í opnunarræðum sínum til að fara með nánum hætti yfir meint embættisbrot Donald Trump, forseta, og af hverju öldungadeildarþingmenn ættu að sakfella hann og víkja honum úr embætti.

Forsetaframbjóðandi stefnir Hillary fyrir meiðyrði
Demókratinn Tulsi Gabbard hefur stefnt Hillary Rodham Clinton fyrir meiðyrði. Krefst Gabbard þess að Clinton verði dæmd til greiðslu 50 milljón dala í miskabætur, um 6,3 milljarða króna.

Brutu lög með frystingu neyðaraðstoðar til Úkraínu
Sjálfstæð eftirlitsstofnun með framkvæmdavaldi Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hvíta húsið hafi brotið lög þegar neyðaraðstoð til Úkraínu, sem þingið hafði samþykkt, var fryst.

Úkraína biður FBI um aðstoð við rannsókn á tölvuinnbroti
Innbrot hakkara rússnesku leyniþjónustunnar í tölvukerfi gasfyrirtækisins Burisma og mögulegt ólöglegt eftirlit með sendiherra Bandaríkjanna í Kænugarði eru til rannsóknar í Úkraínu.

Samverkamaður Giuliani bendlar Trump beint við Úkraínubraskið
Lev Parnas, skjólstæðingur Rudy Giuliani, persónulegs lögmanns Trump Bandaríkjaforseta, heldur því fram að forsetinn hafi vitað allt um þrýstingsherferð Giuliani í Úkraínu.

Tíðindalitlar kappræður Demókrata
Helstu forsetaframbjóðendur Demókrataflokksins tóku í nótt þátt í sjöundu og síðustu kappræðunum áður en forvalið hefst í Iowa í næsta mánuði.

Ætla ekki að fella ákærurnar niður án réttarhalda
Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins ætla ekki að fella ákærurnar gegn Donald Trump, forseta, niður án réttarhalda, eoms og Trump hefur krafist.

Booker dregur framboð sitt til baka
Aðeins einn blökkumaður er eftir í framboði í forvali Demókrataflokksins eftir að Cory Booker tilkynnti að hann ætlaði að draga sig í hlé.

Sanders lætur til skarar skríða gegn helstu keppinautum sínum
Elizabeth Warren var lýst sem frambjóðanda elítunnar í úthringingum sjálfboðaliða framboðs Bernie Sanders.

Facebook stendur við að leyfa áfram lygar stjórnmálamanna
Engar meiriháttar breytingar verða gerðar á stefnu Facebook gagnvart pólitískum auglýsingum á kosningaári í Bandaríkjunum.

Aðeins Ford óvinsælli en Trump við upphaf kosningaárs
Allir Bandaríkjaforsetar sem nutu svipaðs stuðnings og Trump gerir nú á kjördag töpuðu kosningum. Það útilokar þó ekki endurkjör hans.

Biden fullyrðir ranglega að hann hafi verið andsnúinn Íraksstríðinu frá upphafi
Framboð varaforsetans afsakaði svipaða fullyrðingu hans í september með því að hann hefði mismælt sig.

Fyrrum ráðherra Obama dregur framboð sitt til baka
Julian Castro mældist hvorki með nægt fylgi né hafði hann safnað nægum framlögum til að vera gjaldgengur í næstu sjónvarpskappræður í forvali Demókrataflokksins.

Framboð Trump fjáðara en mótherjanna í upphafi kosningaárs
Alls safnaði framboðið jafnvirði 5,6 milljarða íslenskra króna á síðustu þremur mánuðum ársins 2019.

Ráðgjafi Trump sagði flokkinn reiða sig á að hindra kjósendur
Einn af æðstu kosningaráðgjöfum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sagði á fundi Repúblikana að flokkurinn hefði reitt sig á að koma í veg fyrir að fólk sem þykir líklegra til að kjósa Demókrataflokkinn kjósi í baráttunni um ríki sem flakka á milli Demókrata og Repúblikana.

Demókratar deildu: „Milljarðamæringar í vínhellum eiga ekki að velja næsta forseta“
Kappræðurnar fóru að mestu rólega fram en það einkenndi þær hvernig aðrir frambjóðendur beindu spjótum sínum að Pete Buttigieg.

Stefnir í átök þingdeilda vegna ákæra gegn Trump
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur gefið í skyn að Demókratar muni ekki senda ákærurnar gegn Donald Trump, forseta, til öldungadeildarinnar strax.

Þingmenn ræða ákærur gegn Trump fram á kvöld
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun í kvöld greiða atkvæði um það hvort samþykkja eigi ákærurnar tvær gegn Donald Trump, forseta, fyrir embættisbrot.

Þingmenn sem standa höllum fæti styðja ákærurnar gegn Trump
Nokkrir þingmenn Demókrataflokksins, sem þykja flestir nær miðjunni en gengur og gerist og koma frá svokölluðum sveifluríkjum, hafa lýst því yfir að þeir muni greiða atkvæði með því að ákæra Donald Trump, forseta, fyrir embættisbrot.

Ætlar að tryggja að réttarhöldin fái skjótan endi: „Ég er ekki að reyna að þykjast vera sanngjarn kviðdómandi“
Lindsey Graham, formaður dómsmálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, segist ekki ætla sér að þykjast vera "sanngjarn“ kviðdómandi í væntanlegum réttarhöldum þingsins gegn Donald Trump, forseta, fyrir meint embættisbrot.

Ákærurnar samþykktar úr nefnd eftir flokkslínum
Allir þingmenn fulltrúadeildarinnar munu svo greiða atkvæði um ákærurnar í næstu viku. Því næst fer málið fyrir öldungadeildina, þar sem nokkurs konar réttarhöld fara fram.

Atkvæðagreiðslu frestað: „Ekki séns að Trump verði vikið úr embætti“
Atkvæðagreiðslu dómsmálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings um ákærur gegn Donald Trump, forseta, fyrir embættisbrot var frestað í nótt eftir rúmlega 14 tíma nefndarfund.

Þingmenn vilja stutt réttarhöld
Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins vilja stutt réttarhöld yfir Donald Trump og vilja ekki kalla til vitni. Þá vilja þeir hafa réttarhöldin eftir áramót.

Auglýsing Trump vekur lukku, reiði og háð
Starfsmenn forsetaframboðs Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, birtu í gær nýja auglýsingu sem hefur vakið mikla athygli.