Sport

Brasilísk goðsögn flutt á sjúkrahús eftir bílslys
Fyrrum knattspyrnumaðurinn Dunga var fluttur á sjúkrahús fyrr í dag eftir að hafa velt bíl sínum. Dunga vann gullverðlaun sem fyrirliði Brasilíu á heimsmeistaramótinu árið 1994.

„Myndi skipta á öllu fyrir sigur á EM“
Harry Kane mun leiða lið Englands til leiks í Berlín á morgun þegar enska liðið mætir Spánverjum í úrslitaleik Evrópumótsins. Kane hefur aldrei unnið stóran titil á ferli sínum.

Patrik mun verja mark Freys og félaga
Norska liðið Viking greinir frá því á heimasíðu sinni að liðið hafi náð samkomulagi við belgíska félagið Kortrijk um kaupverð á markverðinum Patrik Sigurði Gunnarssyni.

„Þessar stelpur eru stríðsmenn“
Stelpurnar okkar fögnuðu einum stærsta sigri sem unnist hefur hjá íslensku fótboltaliði er þær lögðu Þýskaland 3-0 í gær. Fyrrum landsliðskona segist springa úr stolti yfir þeim miklu fyrirmyndum sem finna má í íslenska liðinu.

Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum
Íslenska U-20 ára landslið kvenna í körfuknattleik mátti sætta sig við tap gegn Belgum í undanúrslitum B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik í dag.

Þurftu að sætta sig við tap gegn Noregi
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum yngri en nítján ára lék í dag Noregi á æfingamóti í Svíþjóð.

Vann Laugavegshlaupið fjórða árið í röð
Laugavegshlaupið fór fram í dag en þetta er í tuttugasta og áttunda sinn sem hlaupið er haldið. Alls tóku yfir 500 hlauparar þátt í ár.

Þórsarar upp í efri hlutann eftir stórsigur í Mosó
Þórsarar eru komnir upp í efri hluta Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir stórsigur á útivelli gegn Aftureldingu í dag.

Aston Villa að ganga frá kaupum á Onana
Everton hefur samþykkt tilboð Aston Villa í belgíska landsliðsmanninn Amadou Onana. Onana var í lykilhlutverki hjá Belgum á Evrópumótinu í Þýskalandi.

Logi áfram á skotskónum en Patrik hélt hreinu og lagði líka upp mark
Logi Tómasson skoraði fyrir Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í dag og Patrik Gunnarsson átti flottan leik í marki Víking.

Svíarnir of sterkir fyrir íslensku strákana
Íslenska tuttugu ára landslið karla í handbolta tapaði með tíu marka mun á móti Svíum, 33-23, á EM í Slóveníu í dag.

Njarðvíkingar töpuðu stigum á móti botnliðinu
Njarðvík tapaði stigum í fjórða leiknum í röð í Lengjudeild karla í fótbolta í dag eftir markalaust jafntefli á móti sameiginlegu liði Dalvikur og Reynis.

Sú tékkneska vann Wimbledon mótið
Tékkneska tenniskonan Barbora Krejcikova vann Wimbledon risamótið í tennis í dag eftir sigur á Jasmine Paolini í úrslitaleiknum.

Norðurlandameistarnir fengu stóran skell í fyrsta leik EM
Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta fékk stóran skell í dag í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni Evrópumótsins í Gdynia í Póllandi.

Matareitrun á EM: Fimm veikar í íslenska hópnum og ein fór á sjúkrahús
Búið er að aflýsa einum leik í b-deild Evrópukeppni tuttugu ára landsliða kvenna í körfubolta í Búlgaríu en margir leikmenn og starfsmenn liðanna á mótinu hafa veikst á síðustu dögum. Íslenski hópurinn slapp því miður ekki.

Brunson hjálpar Knicks með því að skilja fimmtán milljarða eftir á borðinu
NBA körfuboltamaðurinn Jalen Brunson lét verkin tala í gær þegar kom að því að hjálpa New York Knicks að vera betra. Brunson var tilbúinn að fá mun lægri laun fyrir vinnu sína en hann var búinn að vinna sér inn.

Leitaði til Kanada til að finna leikmann fyrir kvennalið Vals
Valsmenn hafa samið við nýjan erlendan leikmann fyrir kvennakörfuboltalið félagsins. Leikmaðurinn er kanadíski-ítalski framherjinn Alyssa Cerino.

UEFA breytir reglunni um gullskóinn á EM
Knattspyrnusamband Evrópu segir að sex leikmenn muni deila gullskó Evrópumótsins í fótbolta nái enginn að skora sitt fjórða mark í úrslitaleiknum á morgun.

Búin að bæta nýliðametið þótt að það séu enn sextán leikir eftir
Caitlin Clark fór enn á ný á kostum í WNBA deildinni í körfubolta í nótt og leiddi að þessu sinni Indiana Fever liðið til sigurs.

Ólafur Ingi þjálfar 21 árs landsliðið og Þórhallur tekur við af honum
Knattspyrnusamband Íslands hefur fundið nýja þjálfara fyrir tvö yngri landsliðs karla í knattspyrnu. Þetta eru 19 ára landsliðið og 21 árs landsliðið.

Franski ráðherrann synti í Signu tveimur vikum fyrir ÓL í París
Margir hafa áhyggjur af bakteríum og óhreinindum í ánni Signu í París en þar mun meðal annars Guðlaug Edda Hannesdóttir keppa í þríþraut á Ólympíuleikunum í París.

Gary Lineker vill banna orðin
Gary Lineker, knattspyrnusérfræðingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, vill alls ekki heyra ákveðin orð í aðdraganda úrslitaleik Englands og Spánar um Evrópumeistaratitilinn.

Íslenska karlalandsliðið í golfi í deild þeirra bestu
Karlalið Íslands tryggði sér sæti í efstu deild Evrópumótsins í golfi með glæsilegum sigri gegn Belgíu.

Sjáðu mörkin sem tryggðu íslensku stelpunum sæti á EM
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann einn stærsta sigur sinn í sögunni þegar Þjóðverjum var skellt 3-0 á Laugardalsvellinum í gær.

Földu myndirnar af Messi baða sex mánaða gamlan Lamine Yamal
Myndirnar af Lionel Messi að baða spænska undrabarnið, þegar Lamine Yamal var aðeins sex mánaða, fóru eins og eldur í sinu um alnetið í vikunni. Strákurinn var sjálfur spurður út í myndirnar í viðtali fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi.

Man. Utd hefur borgað 171 milljarð í vexti af skuldum frá 2005
Blaðamenn The Athletic hafa áhyggjur af rekstrarstöðu Manchester United og segja að félagið gæti lent í vandræðum með að vera réttum megin við strikið þegar kemur að rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Var fyrst í kúluvarpi til að fá pásu frá handboltanum en er nú komin á ÓL
Mosfellingurinn Erna Sóley Gunnarsdóttir verður fyrsti kvenkyns kúluvarpari sem keppir fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum en hún er á leið til Parísar seinna í þessum mánuði.

Bielsa bauð upp á rosalegan reiðilestur
Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, kom leikmönnum sínum til varnar á skrautlegum blaðamannafundi í gær.

Heldur sýningu um vítakeppnir: Angistin, alsælan og sagan hans Southgate
Guðmundur Einar er svo hugfanginn af vítaspyrnukeppnum að hann ákvað að halda myndlistarsýningu tileinkaða þeim. Örlög Gareths Southgate, landsliðsþjálfara Englands, eru listamanninum sérstaklega hugleikin.

Ísland varð aðeins fjórða þjóðin til að tryggja sig inn á EM 2025
Íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti á Evrópumótinu í Sviss næsta sumar með glæsilegum 3-0 sigri á Þjóðverjum á Laugardalsvellinum í gær. Aðeins þrjár þjóðir höfðu þá náð að tryggja sér sæti í lokakeppninni af þeim sextán sem taka þátt.