Hreyfing ungmenna – fjölgum hreyfistundum! Ingvar Arnarson skrifar 6. nóvember 2021 15:30 Samkvæmt nýlegri rannsókn á Íslandi kemur fram að fjórir af hverjum fimm nemendum í 6., 8. og 10. bekk eru ekki að hreyfa sig nægilega mikið . Hvað getum við gert? Hvernig fáum við sem flesta til að hreyfa sig? Það er hægt að fara margar leiðir en fyrir mér er ein leið sem getur náð til sem flestra. Ég hef lengi unnið sem íþróttakennari í framhaldsskóla. Þegar ég byrjaði að kenna í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, sem ég hef kennt í síðustu 15 ár, var skipulag íþrótta/hreyfingu þannig að nemendur mættu einu sinni í viku í íþróttatíma. Nemandi átti að klára eina einingu á önn í íþróttum/hreyfingu og á bak við eina einingu áttu að vera 20 klukkustundir af hreyfingu. Stuttu eftir að ég byrjaði að kenna sá ég að þetta kerfi var ekki til þess fallið að skila nemendum miklum ávinning af hreyfingu. Þegar við fórum að skoða fyrirkomulagið út frá faglegu sjónarhorni sáum við að skipulagið var ekki að skila þeim ávinningi sem til var ætlast og ákváðum að gera breytingar út frá vísindalegum staðreyndum og tókum mið af ráðleggingum frá Embætti landlæknis, en þær eru settar fram í samvinnu við helstu sérfræðinga á sviði hreyfingar hér á landi. Í framhaldinu ákváðum við íþróttakennararnir að leggja til breytingar hjá okkur, við settum saman hugmyndir og lögðum fyrir skólastjórnendur sem tóku vel í breytingarnar og voru sammála þeim rökum sem við höfðum fram að færa. Breytingar til árangurs Við vildum leiðbeina nemendum um að temja sér heilbrigða lífshætti og upplifa ávinning af þeirri hreyfingu og því ákváðum við að fjölga hreyfistundum á viku, í samræmi við ráðleggingar frá Embætti landlæknis. Þegar að við vildum breyta því lentum við á vegg. Það er bara ákveðinn fjöldi eininga sem má fara í íþróttir/hreyfingu til stúdentsprófs. Til að klífa þennan vegg ákváðum við að fjölga einingum á önn en á móti fækka önnum sem nemendur þurfa að vera í íþróttum/hreyfingu. Þannig fjölguðum við hreyfistundum úr einni stund á viku í átta annir yfir í tvisvar til þrisvar sinnum á viku yfir fjórar annir. Við höfðum áhyggjur af því að vera að fækka önnum en mátum það þó svo að nemendur sem venja sig á hreyfingu tvisvar til þrisvar sinnum í viku eru líklegri til að velja íþróttir/hreyfingu sem valeiningar á stúdentsprófi eða temja sér hreyfingu í framhaldinu sem lífstíl. Við ákváðum að leyfa nemendum að halda áfram að velja það sem þau hafa áhuga á og finnst skemmtilegt. Einnig fórum við markvisst að tala við þau um þau forréttindi sem þau væru að fá með því að geta hreyft sig á vinnutíma, mikilvægt að njóta þess og nýta sér sem allra best. Þó svo að við höfðum verið með mikið úrval af áföngum í gamla kerfinu ákváðum við samhliða aukningu hreyfistunda á viku að auka úrval áfanga enn frekar. Þar lentum við líka á veggjum, okkur vantaði aðstöðu, fjöldi í hópum þurfti oft að vera mikill til að áfangi fengist kenndur o.fl. En með góðu samstarfi við þá sem reka íþróttamannvirki bæjarins og með stjórnendum skólans þá gekk þetta upp að mestu leyti. Ávinningurinn Þessar hugmyndir hafa nú verið keyrðar í nokkur ár með góðum árangri. Íþróttir urðu vinsælar! Viðhorf nemenda gagnvart hreyfingu og skólabragur hafa tekið miklum breytingum og sjáum við það mest á auknum vinsældum og aðsókn. Nemendur sem voru búnir með þær einingar sem þeir þurftu til stúdentsprófs fóru að taka íþróttir/hreyfingu sem val einingar á stúdentsprófi og þó nokkrir tóku íþróttir/hreyfingu þó svo þær einingar skiluðu engu inn í stúdentspróf þeirra, einungis þeim til ánægju. Höfum fengið að heyra frá mörgum nemendum að þeim finnist nauðsynlegt að hafa íþróttaáfanga í töflu á hverri önn, því þeim líði betur og hreyfingin veiti þeim mikla ánægju. Með þessum breytingum fundu margir nemendur hreyfingu sem hentaði þeim, náðu árangri og erum við nokkuð viss um að nemendur búi vel að þeirri reynslu sem við buðum þeim uppá þegar kemur að því að ástunda reglulega hreyfingu í framtíðinni. Áskorun til þeirra sem stjórna framtíðinni Að mínu mati er augljóst hvernig við getum brugðist við til að tryggja að sem flest börn og ungmenni fái reglubundna hreyfingu óháð uppruna, efnahag og fjölskylduaðstæðum. Í grunn- og framhaldsskólum landsins getum við náð til sem flestra hvað varðar hreyfingu og hefur það aldrei verið mikilvægara en núna að fjölga hreyfistundum í skólum. En til þess að það sé hægt þarf viðhorfs- og stefnubreytingu. Raunin hefur því miður verið önnur, hreyfistundum í framhaldskólum hefur farið fækkandi og breytingar sem gerðar hafa verið á námskrá hafa í raun verið til þess fallnar að draga jafnvel úr hreyfingu, reynt var að setja hámark á einingar sem máttu fara í hreyfingu og svo með styttingu stúdentsprófs fækkuðu margir skólar einingum í íþróttum/hreyfingu til stúdentsprófs. Í sumum framhaldsskólum er engin aðstaða fyrir hreyfingu og hreyfistundir ekki undir leiðsögn kennara, hreyfingu er jafnvel úthýst, nemendur sendir í líksræktarstöð þar sem að sumir afplána í stað þess að njóta. Mig langar að hvetja þau sem stjórna framtíðinni til að breyta rétt og fjölga hreyfistundum í skólum, það eitt og sér mun skila sér margfalt til samfélagsins! Ávinningurinn af fjölgun hreyfistunda er ómetanlegur, áhrifin á andlega og líkamlega heilsu eru óumdeild og hefur bein áhrif á kostnað samfélagsins af velferðar- og heilbrigðisþjónustu. Tökum höndum saman og fjölgum hreyfistundum og kennum börnum og ungmennum mikilvægi þess að hreyfa sig reglulega. Höfundur er íþróttakennari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Skóla - og menntamál Íþróttir barna Ingvar Arnarson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar