Skoðun

Hvaða lífs­stíll er góður fyrir heilsuna?

Jóhanna E. Torfadóttir og Sigrún Daníelsdóttir skrifa

Nýtt ár markar oft upphaf þess að fólk setji sér það markmið að bæta eigin heilsu. Það geta verið misjafnar leiðir að því markmiði en á þessum tímamótum er algengt að fókusinn sé settur á þyngdartap. Það getur þó reynst varasamt og sýna rannsóknir að innan árs hafa flest bætt aftur á sig einum til tveimur þriðja hluta þyngdarinnar sem var tapað og eftir 5 ár eru flest komin aftur í sömu þyngd. Langtímarannsóknir sýna einnig að einn þriðji þeirra sem léttist var orðinn þyngri en þau voru áður en þau byrjuðu í átakinu.

Þessar niðurstöður eru síður en svo nýjar af nálinni. Þær hafa komið endurtekið fram í rannsóknum um áratugaskeið og eru svo afgerandi að rannsakendur sem fóru yfir niðurstöður þyngdartapsrannsókna ályktuðu fyrir fimmtán árum síðan að óþarfi væri að halda áfram að rannsaka þessa nálgun þar sem löngu ætti að vera orðið ljóst að hún skilaði ekki árangri.

Þyngdartapstilraunir enda yfirleitt í þyngdarsveiflum (e. weight cycling) og benda rannsóknir til þess að þær geti sjálfar verið skaðlegar heilsu. Meðal þess sem komið hefur fram hjá þeim sem léttast og þyngjast ítrekað á víxl eru aukin andleg vanlíðan, tap á vöðvamassa, langvinnar bólgur í líkamanum, háþrýstingur og jafnvel aukin dánartíðni. Megrun eykur jafnframt líkur á þróun átraskana sem eru alvarlegar geðraskanir með margvíslegar og stundum varanlegar heilsufarslegar afleiðingar.

Það má því segja að frasinn sem oft er sagður þegar einhver vill léttast, að viðkomandi eigi bara að hreyfa sig meira og borða minna, geti beinlínis verið hættulegur heilsunni okkar. Það er mikilvægt að átta sig á því að ef við byrjum að hreyfa okkur meira en venjulega þá getur líka þurft að borða meira. Oft gerist það við aukna hreyfingu að við sækjum í hollara fæði. Það er auðvitað jákvætt og stuðlar að því að líkaminn fái þau næringarefni sem hann þarfnast. Rannsóknir sýna að hollari lífsvenjur bæta heilsuna óháð því hvort þyngdartap eigi sér stað eða ekki. Hvort sem við léttumst eða þyngjumst ætti því fókusinn að vera á lífsvenjurnar frekar en breytingar á vigtinni.

Sömuleiðis er vert að hafa í huga tengsl andlegra, líkamlegra og félagslegra þátta við góða heilsu. Það er ekki síður mikilvægt fyrir heilsuna að búa við öryggi, draga úr streitu, bæta svefn og auka félagslega virkni svo fátt eitt sé nefnt. Hér er gott að rifja upp fimm leiðir að vellíðan og geðorðin 10, ásamt ráðleggingum um mataræði og hreyfingu, sem finna má á vefsíðu embættis landlæknis. Höfum líka hugfast að stundum snúa áskoranir okkar að þáttum sem eru ekki á okkar færi að leysa og þá er mikilvægt að leita aðstoðar.

Jóhanna E. Torfadóttir, verkefnastjóri næringar hjá embætti landlæknis

Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×