Skoðun

Viltu að barna­börnin þín verði fá­tækir leigu­liðar?

Hildur Þórðardóttir skrifar

Ef þú vilt að börnin þín og barnabörn munu þurfa að búa í dýru leiguhúsnæði alla ævi, hafa ekki efni á að eiga bíl og geta ekki ferðast til útlanda nema fá leyfi stjórnvalda þá endilega kjóstu flokkana sem hafa verið við stjórn síðustu sjö árin.

Ef þú vilt að auðlindum landsins sé komið undan til þeirra örfáu sem allt eiga hér á landi, þá endilega kjóstu Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn eða Miðflokkinn. Ef þú vilt hins vegar að auðlindirnar séu keyptar upp af erlendum aðilum þá endilega kjóstu Viðreisn eða Samfylkinguna.

Ef þú vilt að börn þín og barnabörn þurfi að nota stóran hluta launanna til að borga rafmagn og vaki á nóttunni til að setja í þvottavél og fara í sturtu þegar raforkuverð er viðráðanlegt, þá endilega kjósa flokka sem ætla að koma okkur í Evrópusambandið.

Ef þú vilt að börn þín og barnabörn geti ekki gengið um náttúruna því búið verður að setja vindmyllugarða út um allt með tilheyrandi ærandi þyt þótt hann sé hljóðlaus, þá endilega kjóstu Sjálfstæðisflokkinn og hina stóru flokkana. Við bætist sundurskorin náttúran til að koma þessum ferlíkjum upp og hús í nágrenni þeirra verða verðlaus vegna hávaða og titrings.

Ef þú vilt að erlendar stofnanir eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin geti stjórnað því hvenær fólk fær að fara út úr húsi, að börn þín og barnabörn fái astma af langvarandi grímunotkun eða heilsa þeirra markvisst eyðilögð með skyldubundnum bólusetningum þá endilega kjóstu Vinstri græna og Samfylkinguna.

Ef þú vilt að börnin þín og barnabörn geti aldrei keypt sér kjöt eða fisk heldur þurfi að borða ódýran gervimat í öll mál, þá endilega kjóstu Vinstri græna, Samfylkinguna eða Sjálfstæðisflokkinn.

Ef þú vilt að allir afkomendur þínir flýi land í leit að betri lífsskilyrðum og þið gömlu hjónin verðið ein eftir í höndum útlenskra umönnunaraðila sem tala ekki einu sinni íslensku, þá endilega kjóstu eitthvað af þessum fimm stærstu flokkum.

Ef þú heldur að ég sé að ýkja og vilt ekki sjá sannleikann, haltu þá endilega áfram að hlusta á heilaþvottinn í fjölmiðlum.

Ef þú hins vegar vilt að börn þín og barnabörn eigi einhverja framtíð hér á landi, að hér verði áfram íslensk þjóð með fulla stjórn á eigin málum og eigin auðlindum, sem nýtur arðs af auðlindunum til að efla innviði, kjóstu þá Lýðræðisflokkinn.

Lýðræðisflokkurinn ætlar að berjast gegn þessari þróun. Við sjáum í gegnum spillinguna, auðlindaþjófnaðinn, framsal valdsins til erlendra stofnana og erum tilbúin að stoppa það, gefir þú okkur heimild til þess með atkvæði þínu.

Kjóstu framtíð fyrir afkomendur þína. Kjóstu XL.

Höfundur er rithöfundur og skipar 2. sæti Lýðræðisflokksins í Reykjavík norður.




Skoðun

Sjá meira


×