Eru eldri sviðslistakonur ekki velkomnar á svið? Rósa Guðný Þórsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 18:32 Tilurð spurningarinnar er nýleg úthlutun Sviðlistaráðs til sjálfstæðra leikhópa. Leikhúslistakonur 50+ er hópur sviðlistakvenna sem hefur það að markmiði að setja á svið viðburði þar sem konur eldri en 50 ára eru í fyrirrúmi. Hópurinn hefur verið starfandi síðan árið 2014 og staðið fyrir ótal viðburðum s.s. ljóðagjörningum, ljóðasýningum, leiklestrum m.a. á nýjum íslenskum leikverkum og leiksýningum. Innan hópsins eru leikskáld, leikstjórar, leikkonur, leikmynda- og búningahöfundar, tónlistarkonur, gervahönnuðir og konur sem hafa starfað í sviðslistageiranum. Viðburðirnir eru orðnir hátt í 40 talsins. Þátttakendur í þessum viðburðum hafa allir gefið vinnu sína að mestu leyti, kannski fengið örfáar krónur í vasann af innkomu miðasölu. Því má fullyrða að Leikhúslistakonur 50+ hafi sannarlega bætt hressilega við menningarflóru Reykjavíkur og nágrennis undanfarin 12 ár. Staðreyndin er sú að konur eldri en 50 ára eru helstu „styrktaraðilar“ íslenskrar menningar. Þær lesa flestar bækurnar, kaupa flesta leikhúsmiða, sækja flesta tónleika, óperur og myndlistasýningar. Það er því mikilvægt að þessar konur fái að njóta sýninga þar sem þær geta speglað sig í eigin raunveruleika, notið listar jafningja sinna. Eins og staðan er í dag má telja á fingrum annarrar handar leikkonur eldri en 60 ára á sviðum leikhúsanna! Margoft hefur hópurinn sótt um styrk til Sviðslistaráðs oftast vegna nýrra íslenskra leikverka og alltaf verið hafnað. Það er ekki laust við að það hvarfli að manni að það að vera kona komin á þriðja aldursskeiðið hafi eitthvað með það að gera? Úthlutunarnefndinni er svo sem vorkunn. Nefndin hefur úr takmörkuðu fé að spila, einungis 165 milljónir til úthlutunar í ár, 125 umsóknir bárust og aðeins 13 duttu í lukkupottinn! Athugið Sviðlistasjóður er fyrir allar sviðslistir: leiklist, danslist og óperur og að sjálfsögðu, skyldi maður halda, ALLAN ALDUR, kyn og kynþætti! Það hefur vart farið fram hjá menningarneytendum gróskan í sjálfstæðu senunni. Fjöldi leikhópa setur upp hverja sýninguna á fætur annarri án nokkurra eða fárra styrkja. Ég, fyrir hönd Leikhúslistakvenna 50+ hvet íslenska ráðamenn til að auka verulega í sviðslistasjóðinn og styðja þannig við bakið á sjálfstæðum leikhópum. Ennfremur hvetur hópurinn ráðamenn til að endurskoða úthlutunarreglur sjóðsins, að úthluta aðeins einu sinni á ári er alveg út í hött! Þau sem ekki fá í ár þurfa að bíða í heilt ár eftir næstu úthlutun o.sv.frv. Þá hvetur hópurinn ráðamenn leikhúsanna, úthlutunarnefnd Sviðslistasjóðs og aðra sem úthluta fé til menningarmála að auka veg eldri sviðslistakvenna og hleypa þeim upp á svið. Höfundur er leikkona og félagi í Leikhúslistakonum 50+. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikhús Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar