Samgöngur sem virka fyrir Hafnarfjörð Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar 8. apríl 2026 11:33 Hafnarfjörður er ört vaxandi bær þar sem íbúar þurfa að komast greiðlega til og frá vinnu, skóla, þjónustu og tómstunda. Miðflokkurinn vill tryggja að samgöngustefna bæjarins byggist á raunverulegum þörfum íbúa, frekar en hugmyndafræði eða tískustraumum. Við viljum krefjast endurskoðunar á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að tryggja að Hafnarfjörður fái þær lausnir sem henta okkar íbúum best. Það er mikilvægt að hafna lausnum sem skerða akreinar og flæði án skýrs ávinnings fyrir bæjarbúa. Miðflokkurinn leggur sérstaka áherslu á úrbætur á helstu flöskuhálsum og tengingum bæjarins. Við viljum bæta tengingar við Reykjavíkurborg og önnur nágrannasveitarfélög, sem mun auðvelda íbúum að ferðast án erfiðleika. Auk þess er nauðsynlegt að viðhalda götum bæjarins. Við munum setja viðhald gatna í forgang, sem er grundvallaratriði fyrir öryggi og aðgengi. Við viljum einnig efla innanbæjarleiðir Strætó til að tryggja að ný hverfi verði tengd með raunhæfum hætti. Í því skyni ætlum við í tilraunaskyni að bjóða upp á frían strætó fyrir alla íbúa í tvö ár. Með þessu viljum við gefa íbúum raunhæft tækifæri til að tileinka sér almenningssamgöngur, draga úr umferð og minnka mengun til lengri tíma. Þetta er fjárfesting í lífsgæðum og umhverfismálum. Rannsóknir sýna að þegar almenningssamgöngur eru gerðar aðgengilegar og gjaldfrjálsar eykst notkun þeirra verulega ekki bara meðal þeirra sem eru þegar vanir strætó, heldur einnig meðal þeirra sem hafa hingað til valið einkabílinn. Með þessum aðgerðum munum við tryggja að samgöngur í Hafnarfirði séu ekki aðeins aðgengilegar, heldur einnig að þær stuðli að betri lífsgæðum allra íbúa. Tækifærið er núna, með Miðflokkinum, að skapa samgöngukerfi sem þjónar þörfum okkar allra og eykur lífsgæði í Hafnarfirði. Höfundur skipar 2. sæti á framboðslista Miðflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Hafnarfjörður er ört vaxandi bær þar sem íbúar þurfa að komast greiðlega til og frá vinnu, skóla, þjónustu og tómstunda. Miðflokkurinn vill tryggja að samgöngustefna bæjarins byggist á raunverulegum þörfum íbúa, frekar en hugmyndafræði eða tískustraumum. Við viljum krefjast endurskoðunar á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að tryggja að Hafnarfjörður fái þær lausnir sem henta okkar íbúum best. Það er mikilvægt að hafna lausnum sem skerða akreinar og flæði án skýrs ávinnings fyrir bæjarbúa. Miðflokkurinn leggur sérstaka áherslu á úrbætur á helstu flöskuhálsum og tengingum bæjarins. Við viljum bæta tengingar við Reykjavíkurborg og önnur nágrannasveitarfélög, sem mun auðvelda íbúum að ferðast án erfiðleika. Auk þess er nauðsynlegt að viðhalda götum bæjarins. Við munum setja viðhald gatna í forgang, sem er grundvallaratriði fyrir öryggi og aðgengi. Við viljum einnig efla innanbæjarleiðir Strætó til að tryggja að ný hverfi verði tengd með raunhæfum hætti. Í því skyni ætlum við í tilraunaskyni að bjóða upp á frían strætó fyrir alla íbúa í tvö ár. Með þessu viljum við gefa íbúum raunhæft tækifæri til að tileinka sér almenningssamgöngur, draga úr umferð og minnka mengun til lengri tíma. Þetta er fjárfesting í lífsgæðum og umhverfismálum. Rannsóknir sýna að þegar almenningssamgöngur eru gerðar aðgengilegar og gjaldfrjálsar eykst notkun þeirra verulega ekki bara meðal þeirra sem eru þegar vanir strætó, heldur einnig meðal þeirra sem hafa hingað til valið einkabílinn. Með þessum aðgerðum munum við tryggja að samgöngur í Hafnarfirði séu ekki aðeins aðgengilegar, heldur einnig að þær stuðli að betri lífsgæðum allra íbúa. Tækifærið er núna, með Miðflokkinum, að skapa samgöngukerfi sem þjónar þörfum okkar allra og eykur lífsgæði í Hafnarfirði. Höfundur skipar 2. sæti á framboðslista Miðflokksins í Hafnarfirði.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar