Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar 29. júní 2026 10:16 Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna birti í vikunni skýrslu þar sem segir að Ísrael vinni skipulega að því að myrða börn í Palestínu og á hernumdu svæðunum í Ísrael. Nefndin segir að barnamorðin séu hluti af áætlun Ísraela um þjóðarmorð á Palestínumönnum og vera stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu. Sú staðreynd að Ísrael stundi skipuleg morð á börnum kallar á viðbrögð íslenskra yfirvalda. Ísraelar drepa barn á hverri klukkustund. Ísraelskir hermenn hafa drepið eitt barn á hverri klukkustund síðan 7. október 2023 og sært tvö til viðbótar. Á hverri einustu klukkustund. Dag og nótt. Ár eftir ár. Þau hafa drepið að minnsta kosti 21.500 börn og sært önnur 54 þúsund. Mörg þeirra eru örkumla manneskjur fyrir lífstíð. Mörg þessara barna eru skotin með byssum í höfuð og andlit. Myrt af beinum ásetningi um að drepa barn. https://www.volkskrant.nl/kijkverder/v/2025/gunshot-palestine-children-israel-war~v1819649/ Barnamorðingjar á Íslandi. Morðingjar þessara barna koma til Íslands í þegar þeir eiga frí. Án nokkurra takmarkana. Við höfum ekki sett neinar hömlur á komur þeirra til Íslands. Ísland er aðili að málsókn gegn Ísrael fyrir Mannréttindadómstólnum og gerir þá kröfu að Ísrael verði dæmt fyrir þjóðarmorð gegn Palestínumönnum. En fólkið sem fremur þjóðarmorðið er hinsvegar velkomið til Íslands sem ferðamenn. Þetta fer ekki saman. Landrán Ísraelsmanna. Fyrir utan morð og pyntingar á Palestínumönnum, bæði börnum og fullorðnum stundar Ísrael rán á palestínsku landi sem Sameinuðu þjóðirnar hafa oft mótmælt sem lögleysu. Samkvæmt samþykktum Sameinuðu þjóðanna er það skylda allra aðildarþjóða bandalagsins að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vinna gegn landráninu sem Ísraelsmenn stunda. Aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna er sérstaklega bent á viðskiptaþvinganir í þessu sambandi en sú leið er talin hafa ráðið úrslitum um að það tókst að knésetja kynþáttastefnu stjórnvalda í Suður-Afríku. Það er því er eðlilegt skref að loka á komur Ísraelsmanna til Íslands meðan þetta ófremdarástand ríkir. Kynþáttastefnan í Ísrael. Fyrir utan þjóðarmorðið, landránið og barnamorðin sem Ísraelsmenn eru að fremja ríkir kynþáttastefna í Ísrael þar sem gyðingar njóta meiri réttinda en frumbyggjarnir; Palestínumenn. Eina leiðin til að til að fá því breytt er alþjóðlegur þrýstingur í formi viðskiptaþvingana og að banna komur ferðamanna frá Ísrael. Við eigum að banna komur barnamorðingja. Það er því í samræmi við stefnu Íslands og samþykkt Sameinuðu þjóðanna að banna komur ferðamanna frá Ísrael til Íslands. Slíkt bann væri örugglega í samræmi við vilja meirihluta Íslendinga sem hafa flestir skömm á morðum á saklausum borgurum í tugþúsundatali. Undanfarin tvö ár hafa um 5 þúsund Ísraelsmenn komið árlega til Íslands sem ferðamenn. Það er agnarlítill hluti þeirra 2.3 milljóna ferðamanna sem koma hingað, svo efnahagsleg áhrif þeirra eru hverfandi. Hverjir taka þátt þjóðarmorðinu? Flestir gyðingar í Ísrael þurfa að gegna herskyldu í 2 til 3 ár. Eftir það eru allir skráðir í varalið og kallaðir til herþjónustu næstu 20 til 25 árin eftir þörfum. Eftir að þjóðarmorðið í Gaza hófst hefur ísraelski herinn kallað mjög marga varaliðsmenn í herinn, oft í marga mánuði á ári. Stærstur hluti gyðinga í Ísrael á aldrinum 18 til 50 ára hefur því tekið þátt þjóðarmorðinu á Gaza. Þá er ótalinn sá mikli stuðningur sem fólk og fyrirtæki þar í landi hafa veitt ísraelska hernum meðan á þjóðarmorðinu hefur staðið. Viðhorf gyðinga í Ísrael. Samkvæmt könnun eru 75% gyðinga í Ísrael sammála þeirri fullyrðingu að “engin saklaus manneskja sé á Gaza.” Yfir 80% gyðinga í Ísrael vilja að fólkið sem býr á Gaza verði flutt í burtu og meira en helmingur þess hóps vill að fólkið á Gaza verði drepið. Ekki í okkar nafni. Þessi viðhorf sem eru ríkjandi meðal gyðinga í Ísrael eru algerlega andstæð lífsskoðunum flestra Íslendinga og vekja okkur viðbjóð. Ekki hafa allir gyðingar í Ísrael tekið þátt í þjóðarmorðinu eða styðja þá stefnu. Það fólk er hins vegar yfirleitt hlynnt refsiaðgerðum gegn Ísrael því það er eina leiðin til að ástandið breytist. Hvað getur Ísland gert? Ísland er að sönnu lítið land en við getum haft mikil áhrif. Bann við komum ísraelska ferðamanna væri skref sem hefði áhrif. Slíkt skref er eðlilegt framhald af þátttöku okkar í málssókninni fyrir Mannréttindadómstólnum. Við getum ekki tekið fagnandi á móti fólki sem við vitum vel að fremur þjóðarmorð. Á annan tug landa bannar í dag komur fólks með ísraelsk vegabréf svo við værum ekki ein á báti. Hvað getum við gert? Mörg fyrirtæki í ferðamennsku víða um heim og á Íslandi vilja ekki þjóna gyðingum frá Ísrael. Margir staðir hafa slíkar merkingar og eða hafa uppi myndir af fána Palestínu sem oftar en ekki kallar fram kynþáttahyggju ísraelskra ferðamanna. Við erum mörg sem getum ekki hugsað okkur að vera innan um barnamorðingja á veitinga- eða gististað og eðlilegt að rekstraraðilar slíkra staða taki tillit til þeirra tilfinninga. Aðgerðir strax. Fyrst og síðast stendur það upp á íslensk stjórnvöld að setja okkur ekki í þá stöðu að þurfa að vera innan um Ísraelsmenn sem taka beinan þátt í þjóðarmorði sem Ísland hefur opinberlega fordæmt. Íslandi ber skylda til að gera það sem við getum til að stoppa morð Ísraelsmanna á börnum, þjóðarmorð á Palestínsku þjóðinni, landráni Ísrales, stríðsglæpum þeirra og aðskilnaðarstefnunni. Við þurfum ekki orð - heldur aðgerðir. Höfundur er kvikmyndagerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn B. Björnsson Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar